Færsluflokkur: Bloggar

Ekkert um viðskipti borgarfulltrúa við borgina ?

Ekki virðist eiga að rannsaka milljóna viðskipti fyritækis í eigu Þorleifs við Borgina en þau hafa á undanförnum árum numið nærri þrjúhundruð milljónum. Ekki þar fyrir að ég haldi að fyrirtækið hafi ekki unnið  fyrir þessar milljónir. Það er ekki viðeigandi samt að fyrirtæki borgarfulltrúa sé á beit í borgarsjóði, fyrirtæki í eigu borgarfulltrúa eiga ekki að sækja um verk til borgarinnar því það er ekki viðeigandi. Hinsvegar finnst mér allt í lagi þó fyrirtækið taki þátt í tilboðum hjá öðrum sveitarfélögum.

Vonandi rannsakar nefndin hvernig borgarfulltrúar hafa hagnast um milljónir með því að stela eiginfé SPRON í krafti aðstöðu sinnar. Þá á ég auðvitað líka við  nýlega fyrrverandi.

Auðvitað og því miður er spillingin hvergi meiri en á sveitarstjórnarstiginu og þar er ekki heldur grundvallarskilningur á þrískiptingu valdsins en allar ákvarðanir á þessu stigi eru í graut. Þannig fær einn borgarfulltrúi að vera borgarstjóri og svo fá þeir að leika í forsætisframkvæmdanefnd. Á sama tíma eru þeir að setja reglur eftir að Alþingi heimilaði hreppastiginu að skipta sér af öllu en senda reikninginn til íbúana. Þessi '' viðamikla reynsla'' fyllir þá svo miklu öryggi og sýnifíkn að þeir telja sig endilega eiga erindi á Alþingi. Margir þeirra fá svo framgang í ''starfi'' og eru kosnir á þing. Gjarnan gerist þetta eftir að fjárhagur sveitarfélagsins hefur verið lagður í rúst en bestu vinirnir jafnframt orðnir helstu framkvæmdastjórar þess. Skildi hrunið og skilningsleysi þingmanna á hugmyndinni um þrískiptingu ríkisvaldsins ekki einmitt hafa verið fyrir það að vitleysan lærðist í sveitarfélaginu.


mbl.is Auglýst eftir sérfræðingum í rannsóknarnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara reynsla í spillingu.

Velflestir núverandi borgarfulltrúa eru algjörlega reynslulausir nema að vera á beit í borgarsjóði. Hvar hefur Vilhjálmur verið nema standandi á beit í borgarsjóði ? Hvergi nema þar alla sína hunds og kattartíð. Það má segja um Ólaf að hann hefur reynslu af að vera á kaupi hjá sjálfum en aðrir hafa hvergi komið nálægt neinu nema vera á kaupi frá Borginni.

Besti flokkurinn hefur í raun reynslumesta fólkið en frambjóðendur hans hafa allir verið í harkinu og þurft að leggja sjálfa sig að veði. Þá er ljóst að mikla reynslu þarf í mörgu til að gera mynd eins og fangavaktina eða vera með standup eða að skipuleggja tónleika eða plötuútgáfu og oft með litla peninga til framkvæmda. Ég sé alla frambjóðendur Besta flokksins þannig að þeir geti ráðið við það að vera borgarfulltrúi en ég sé enga borgarfulltrúa eða frambjóðendur fjórflokksins koma því í verk sem frambjóðendur Besta flokksins hafa komið á koppinn.


mbl.is „Ef ég fell í kosningunum segi ég bara verði ykkur að góðu"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skuldakóngurinn áfram

Bæjarfulltrúar ætla nú umvörpum að skipta inn nýjum flokksfélögum á beit í bæjarsjóðum víða um land. Nýjir vinir og kunningjar komast í viðskipti eða fá framkvæmdastjóralífeyri fyrir dygga þjónustu við klíkuna. Í Reykjanesbæ er að vísu lítið eftir í bæjarsjóðnum og búið að veðsetja framtíðartekjur af ímynduðum væntanlegum fasteignasköttum af væntanlegu álveri sem aldrei kemur.

Enginn besti flokkur býður fram í Reykjanesbæ og því munu skuldaprinsar fjórflokksins sitja þar áfram og skuldakóngurinn Árni Sigfússon fékk yfirburðarkosningu til að leiða skuldasöfnunina í bænum hér eftir sem hingað.


mbl.is Síðasti bæjarstjórnarfundurinn í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsbankinn selur fyrir Landsbankann

Tilkynningin lýtur út eins og fyrirtækjaráðgjöf Landsbanka hafi verið falið að selja fyrir sakir þekkingu sinnar á sölu á fyrirtækjum. Hið rétta er að Landsbankinn á klabbið allt og hefur falið Landsbankaklaninu að selja hús og lóðir í hverfinu. Hitt er rétt að bankinn situr í öllum sætum við pókerborðið nema einu ( kannski situr vinur hans þar ? ) og ef vinur stjórnenda bankans er ekki þar þá gæti það verið einhver sem bankinn dregur að borðinu  til að kaupa húsið í brjálsemi. Við skulum fylgjast vel með hverjum verður selt húsið. Ef það verður einkavinur þá verður það gefið. Ef ekki þá skiptir húsið um hendur í skuldaskilum. Ef einhver frjáls aðili kaupir þá er hann geggjaður.
mbl.is Boðið að kaupa lóðir með
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hótelvæðing gamla bæjarins.

Verði nýju deiliskipulagi þröngvað þarna inn og Heilsugæslustöðin eyðilögð og breytt í hótel þá eiga fleiri svæði eftir að fylgja í kjölfarið. Erfitt verður að synja Skúlagötublokkunum, Íslandsbanka í Lækjargötu og Bergstaðastrætisreitnum um að breyta sér í hótel. Sjálfsagt er  það þetta sem borgaryfirvöld stefna að. Hótel færa borginni háa skatta en þarfnast ekki útgjalda á borð við skóla. Þá hafa hótelgestir ekki atkvæðisrétt í sveitarstjórnarkosningum og því gera þeir ekki kröfur eins og kjósendur. Fyrir efnahagslífið og miðbæinn er þetta algjört óráð og á eftir að eyðileggja miðbæinn sem íbúðabyggð.
mbl.is Ætla að mótmæla við Heilsuverndarstöðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÍSLENDINGAR Gætu lært af honum.

Íslendingar gætu sem þjóð lært mikið af Bagger, hann hefur keyrt marga í þrot en viðurkennir þó á endanum að vera siðblindur. Eitthvað sem okkur bráðvantar að gera. Held það sé í raun mjög nauðsynlegt að lýsa því yfir að Ísland sé siðblindulýðveldi.
mbl.is Stein Bagger segist vera siðblindur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppreisn gegn flokkseigendafélögum

Hluthafar í fjórflokknum hafa mjólkað bæjarsjóð í Kópavogi í langan tíma. Þar eins og um land allt eru borgararnir að rísa upp gegn þessu kerfi. Það er frábært framtak en þetta fólk hefur áttað sig á að spillingin er hvergi meiri en hjá sveitarfélögunum í landinu. Vinir og kunningjar í fjórflokknum hafa í raun fengið að vera á beit í bæjarsjóðum um land allt og tæmt þá hressilega.

Framtíðarmarkmiðið hlýtur þó að vera að koma sveitarfélögunum á öskuhauga sögunnar. Þau eru algjörlega óþarfur milliliður sem kostar almenning morðfjár.


mbl.is Listi Kópavogsbúa gefur engin loforð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kirkjumálaráðuneytið

Gylfi fór með postillubréfið sem Jónas Jónsson flutti í hittifyrra og Árni Matt var fengin til að flytja árið 2007. Átti flutningurinn sér stað á þessu '' kirkjuþingi'' bankamanna. Kemur fram í handritinu sem Gylfi fékk til að lesa að bankahrunið væri allt saman öðrum að kenna. Þannig hafi fall Lehmans bræðra verið ísjakinn sem '' bankarnir'' lentu á fyrir tilstilli skipstjórans. Kemur glöggt fram í  textanum að símsvarinn í Viðskiptaráðuneytinu hefur  greinilega ekki lesið skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Þar er allt önnur greining. Skilanefnd Glitnis og sérstakur saksóknari sjá allt aðra mynd.

Fyrst að  viðskiptaráðherrann umgengst fjármálafyrirtækin eins og trúfélög þá finnst mér eðlilegast að fjármálafyrirtæki og starfsemi þeirra verði færð undir Kirkjumálaráðuneytið. Þar verði eftirlitið  með starfsemi bankanna og annarra trúfélaga.


mbl.is Gylfi treystir íslenskum bankamönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjúkrabílalögfræðingar

Skilanefndin hefur fengið tilboð frá sjúkrabílalögfræðingum um að stefna þessu fólki. Þeir kunna sitt fag

og skilanefndin þarf sjálfsagt lítið að leggja út en vinnist málin þá taka lögfræðingarnir feita þóknun, jafnvel helming. Hluti af leiknum er að stefna sem víðast og ef til vill vinna þeir þessi einkamál skilanefndarinnar. 

Það  verða góðar fréttir fyrir venjulega viðskiptavini Glitnis s.s. almenning sem tók lán hjá Glitni af því hann hélt að Glitnir væri banki. Þeir geta þá sótt skaðabætur á hendur nýja bankanum í sérstökum dómsmálum og kæmi sér vel ef ríkisstjórnin samþykkti hópsmálssóknir til að gera þeim léttara fyrir.

Almennir lántakendur gætu jafnvel líka sótt nýja Íslandsbanka í sérstöku dómsmáli í t.d. New York. Þeir gætu krafist skaðabóta sem þýddi þá að þeir þyrftu ekki að greiða nema kannski 1/4 af höfuðstól lána sinna. Jafnframt munu slík málaferli ganga af nýja bankanum dauðum. Þannig að sennilega er skilanefndin að drepa Íslandsbanka í leiðinni.


mbl.is Ætlar ekki að taka til varna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flestar sölur eftir kröfu Varðar og Reykjavíkurborgar

Veit ekki hvort fólk veit af því en flestar þessar sölur fara fram skv. beiðni Varðar tryggingafélags og Reykjavíkurborgar. Snýst það aðallega um  að koma feitri lögmannsþóknun til einkavina Hönnubirnu og feitri Lögmannsþóknun til tvíbura Varðar sem er Lögheimtan. Þar verður þóknun 170.000. kr til innheimtu á 9000 króna lögveðskröfu. Lögveðskrafa er hinsvegar þannig að aðeins þarf að innheimta hana með einu bréfi til Sýslumanns.Milliganga lögmanna er óþörf. Vörður og Reykjavíkurborg hafa hinsvegar misnotað lögveðsréttinn og veitt lögmönnum veiðileyfi á borgarana og fengið til þess atbeina Sýslumanna sem engar athugasemdir hafa gert við sjálftökutaxta þessara aðila.

Alþingi er sofandi og stöðvar ekki þessar innheimtuþóknanir og framkvæmdavaldið gerir sjálftökur þessar þægilegri með því að hækka dómsmálagjöldin. 

Það eru ekki bankar sem eru að krefjast þessara uppboða nema í miklum minnihluta eins og virðist vera flökkusaga.


mbl.is 62 fasteignir seldar nauðungarsölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband