29.2.2012 | 13:35
Íslenska '' frjálshyggjan''.
Eyþór Arnalds: Einkavæðing og frjálshyggja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2012 | 10:14
Átti aldrei að fara í gegn.
Þessi embætti verður að leggja niður í núverandi formi og skipa málum hér í samræmi við það sem tíðkast í réttarrríkjum Evrópu. Vel er hægt að líta til embætta t.d. krónufógetans í Svíþjóð eða Sýslumannsembætta í Danmörku. Hér eru þessi mál í algjörri andstöðu við meginreglur réttarríkisins og ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu.
Annað sem er missagt í fréttinni er að atburðarrásinni er snúið á hvolf en kröfuhafinn er ofbeldismaðurinn ásamt Innanríkisráðherranum og Alþingi en eigandi eignarinnar er brotaþolinn í '' dæmisögu'' þessari um '' góða '' Sýslumanninn.Hann er hinsvegar að vinna eingöngu fyrir kröfuhafann en á kostnað allra skattborgara, líka þeirra sem þurfa að þola ofbeldið.
Sýslumaður stöðvaði uppboð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.2.2012 | 21:53
Kona í Kartellið.
Þá er framfærsla fyrirtækisins tryggð með sköttum á heimilin alveg óháð notkun.Samt er búið til stórt net fyrirtækja um að innheimta skatta á þessa örfáu íbúa.
Auðvitað er gott að kona fái að leiða okur og mafíustarfsemi í landinu í orkugeiranum en er ekki kjarni málsins að okrað er á orkuneytendum í landinu og það er það sem þarf að vinda ofan af en ekki að fagna því þó kona komist í okraraklúbbinn.
Fyrsta konan í stjórn Samorku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2012 | 15:13
Náttröllin
Þá hafa uppboðsbeiðendur sjálftöku á innheimtukostnaði og geta bætt hvaða kostnaði sem er ofan á uppboðskröfur.Sýslumenn hlýða og þá eru það ekki sýslumenn sem ákveða uppboðsmeðferð eða afturköllun heldur sá sem biður um uppboð.
Framkvæmdir sýslumanna snúast því að litlu leyti um að fullnusta dóma en aðallega um að tryggja velferðarstyrk til tryggingarfélaga og lögmanna en það er s.s. rétt hjá Þórólfi að þeir fara að íslenskum '' lögum'' en spila sig ábyrgðarlausa og vísa allri ábyrgð á framkvæmdinni til uppboðsbeiðenda. Það er líka rétt hjá Þórólfi að það eru aðallega tryggingarfélög og sveitarfélög sem eru að biðja um uppboð þessi síðustu ár og höfuðstóll uppboðskrafna þeirra eru iðulega smáupphæðir en þegar þær komast í hendur milliliðanna, sem eru iðulega, lögmenn sem eru tryggingarfélögum og sveitarfélögum þóknanlegir þá margfaldast þær og þannig verður 8 þúsund króna krafa tryggingarfélags að 250 þúsund krónum og því óviðráðanleg venjulegu fólki.
Innanríkisráðherrann aðhefst ekkert enda hefur lögmannafélagið fasta eftirlitsmenn inn í ráðuneytinu til að passa upp á sína hagsmuni en skuldarar og neytendur eru réttlausir nema að nafninu til.
Það er einnig rétt hjá Þórólfi að sýslumenn brjóta ekki stjórnsýslulög því embættin eru auðvitað UNDANÞEGIN stjórnsýslulögum.
Það tekur ekki nema 5 sólarhringa að breyta þessu sérhagsmunakerfi sýslumanna og lögmanna með lagabreytingu en ríkisstjórnin er áhugalaus um allt nema sérhagsmuni þeirra sem veita henni '' ráð''.
Hafna ásökunum Hagsmunasamtaka heimilanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2012 | 10:16
Gerir venjulega ekkert.
Þegar hreinsaðir verða út sérhagsmunafulltrúarnir í næstu kosningum þá munu þessi mál auðvitað öll koma til skoðunar og vonandi koma uppgjörslög þar sem hinir '' óhreinu'' munu aftur fá eignir sínar sem Ögmundur og Sýslumenn hans hafa rænt af fólki.
Það hefði verið svo miklu betra ef Ögmundur hefði einbeitt sér að því að starfa í skátahreyfingunni frekar en að láta landsmálin til sín taka.
Senda innanríkisráðherra kvörtun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.2.2012 | 00:18
Mikil yfirviðvera og sjúkrabílalögfræðingar.
Gunnar fær frest | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.2.2012 | 20:35
Stjórnina á vergang.
Vilji Samfylkingin styrkja Aðalstein Leifsson er miklu hreinlegra að gera það bara með styrktarframlagi til hans á fjárlögum.Óþarfi að láta það líta út eins og um sé að ræða greiðslu fyrir vinnuframlag í stjórn FME.
Stjórn FME fundar í kvöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sennilega stendur til að gera Steingrím eða Ástráð að næsta forstjóra. Það er lágmarksvirðing við skattborgarana verði það niðurstaðan að Gunnar hætti að Aðalsteinn Leifsson og Steingrímur J gefi frá sér aumingjastyrkina sem skattborgarar greiða þeim og segji af sér embættum.
Forstjóra FME sagt upp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.2.2012 | 19:50
Mannauðsstjórinn klíkuráðni.
84% borgarstarfsmanna ánægð í starfi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.2.2012 | 11:03
Hálfur milljarður í styrk frá ríkinu til Varðar
Einn þeirra er um að Alþingi þvingar fasteignaeigendur í landinu til að kaupa brunatryggingar á fasteignir sínar á tíu sinnum hærra verði en þarf. Þá þurfa tryggingarfélögin ekki einu sinni að geta staðið við tryggingar sínar né vera gjaldfær. Samt verða fasteignaeigendur að '' kaupa'' nauðungartryggingar þessar. Geri þeir það ekki eignast tryggingafélögin fasteignirnar.Tólf milljarðar eru þeir peningar sem fasteignaeigendur verða að láta af hendi til tryggingarfélaganna á hverju ári. Tekjurnar eru tæplega 14 milljarðar á ári en brunatjón að jafnaði um 1200 milljónir á ári. Lungin af þeim er sennilega greiddur af sértryggingum eins og innbústryggingum sem gefa aukaiðgjöld. Gefur því auga leið að hér eru miklir velferðarstyrkir í boði handa tryggingafélögum. Þá er tryggingarfélögum einnig falin innheimta á ýmsum sköttum m.a. ofanflóðasjóðsgjaldi.
Til skamms tíma tryggði ríkið sig ekki enda miklu ódýrara fyrir ríkið að kaupa engar tryggingar. Í þessu sambandi má nefna að ekki hefur kviknað í fasteign í eigu ríkissjóðs í marga áratugi. Nú hefur '' ríkið'' greinilega ákveðið að styrkja Vörð og einhver fær auðvitað kött af viðskiptunum.
Ekkert eftirlit er hinsvegar með tryggingarfélögum og starfsemi þeirra og engin fylgist heldur með fjárreiðum ríkissjóðs nema Rendi og allir vita að það er bara til málamynda og beinist aðallega að litlum aðilum.
Þessir velferðarstyrkir til tryggingarfélaga beint og óbeint eru auðvitað óheimilir skv. ESA samningnum og Mannréttindasáttmála Evrópu en því miður tekur nokkur ár enn að vinda ofan af þessu enda íslenskir ríkisdólgar í fremstu röð þegar kemur að mannréttindabrotum.
Vörður tryggir fasteignir ríkisins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 1272
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar