Skyldutryggingar hjá gjaldþrota félögum.

Eitt af því sem skýrir pengingaflæði inn í tryggingafélög eru s.k. skyldu og nauðungartryggingar s.s.bíla

og brunatryggingar.Helstu vinir tryggingarfélaganna hafa verið alþingismenn en þeir hafa neytt borgarana til að kaupa tryggingar.Hér á landi eru tryggingar miklu dýrari en í nálægum löndum og svo þegar eitthvað hendir t.d. ef gamalt hús brennur þá færðu ekki fé til að endurbyggja heldur bætur að

frádregnum afskriftum.Þannig lækka bætur vegna gamals húss.Sama gilti þar til nýlega um skaðabótatryggingar.Þar greiddu viðskiptavinir iðgjöld en fengu aldrei bætur í samræmi við þau af því sú starfsemi var niðurgreidd af almannatryggingum og bótasjóðum verkalýðsfélaga.Aðrar tryggingabætur fást svo greiddar að gengnu dómsmáli. Nauðungartryggingarnar og samantekin ráð um verð hafa auðvitað leitt til hárra iðgjalda.Þannig gildir það sama um tryggingafélögin og lífeyrissjóðina.Samtryggingin hefur leitt til hærri kostnaðar fyrir almenning og minni réttinda. Sá eini sem hagnast er bótasjóðurinn sem oft er notaður til að kaupa sér áhrif eða er einfaldlega stolið eins og í tilfelli Sjóvár. Það er spurning hvort almenningi sé skylt að kaupa nauðungartryggingar af gjaldþrota tryggingafélögum sem rekin eru á undanþágu frá FME ?? Tryggingafélögin geta ekki  efnt skyldur sínar   skv. tryggingasamningum en samt virðist sem að nauðungartryggingatakar verði samt áfram að  ´´eiga´´ viðskipti við þau. 


mbl.is Sjóvá skuldaði í bótasjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sama system og hjá lífeyrissjóðunum.  Þjófnaður í skjóli löggjafans.

Magnús Sigurðsson, 8.7.2009 kl. 10:52

2 identicon

Þú  veltir  upp  áhugaverðum  atriðum  þarna.

Erum  við  þá  í  rauninni ótryggð?

PS.  Nýlega  kom  fram  að  kröfur í þrotabú  ,,Milestone"  næmu  um  80  milljörðum  en  aðeins  til um 6 milljarðar  upp í kröfurnar.

Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 8.7.2009 kl. 11:24

3 Smámynd: Einar Guðjónsson

Myndi einhver kaupa á raðgreiðslum húsgögn af gjaldþrota húsgagnaverslun ?? jafnvel þó Neytendastofa gæfi undanþágu ?? Held varla. Ég geri verulegan fyrirvara

á hvort manni beri að greiða skyldu og nauðungartryggingar nema mánuð fyrir mánuð og þá eftir á. Hinsvegar eru Sýslumenn erfiðir og leyfa tryggingarfélögum að

sækja iðgjöldin fyrirhafnarlítið í hinar tryggðu eignir.Þetta er eins og með annað: rekstrartekjur þeirra eru gulltryggðar en svo þurfa menn oft að sækja bæturnar með hjálp Hæstaréttar. Í líftrygginga og skaðatryggingum greiða þau aldrei neitt út nema að gegnum dómi.

Einar Guðjónsson, 8.7.2009 kl. 12:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 963

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband