'' Kjölfestufjárfestarnir '' eru komnir í Bónus

'' Kjölfestufjárfestarnir'' Árni og Hallbjörn ásamt lífeyrisjóðum launafólks fengu úthlutað hlut í Högum af Arion. Nú eru afleiðingar kaupfléttunnar að koma fram. Verðin í Bónus hafa því verið hækkuð hressilega til að greiða fyrir hlutinn. Lífeyrissjóðir launafólks fólu Árna og Hallbirni '' reksturinn'' á Bónus og hugmyndafræðin með kaupunum var að okra meira á kúnnanum en minnka kostnað. Bónus er fákeppnisfyrirtæki sem tryggði sér einokun á verslun í mörgum nýjum hverfum á Reykjavíkursvæðinu á skipulagsvaldatíma R-listans. Í skiptum voru stjórnmálamenn í Reykjavík keyptir með fjárframlögum. Það er því mjög viðeigandi að Hallbjörn '' kjölfestufjárfestir'' skuli vera kvæntur borgarfulltrúanum Þorbjörgu Helgu.
mbl.is Krónan ódýrust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta vill þjóðin.

Ari Dúa (IP-tala skráð) 1.9.2011 kl. 11:32

2 identicon

Einar:  Án þess að ég viti það, en borgaði Bónus einhverja vexti af sínum lánum hjá bönkunum?  Ég held að núverandi eigendur komist ekki upp með annað en að greiða vexti.

Var í Bónus í Njarðvík um daginn og mér fannst vöruverð ekki hafa hækkað mikið á þeim vörum sem ég hef fylgst með frá því árið 2009.  Var eiginlega frekar hissa á því.  Ætli þeir hækki ekki þær vörur sem ég ekki fylgist með.  Það er líklegast eða að minnið er að stríða mér.

Ég var nú með verðin skráð í tölvunni minni, en í þeirri gömlu.  Því miður.  Það væri gaman að fara Bónus og tékka á því í staðin fyrir að bulla eitthvað eins og ég er að gera. 

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 1.9.2011 kl. 11:45

3 Smámynd: Einar Guðjónsson

Það væri sniðugt Stefán, tók sjálfur strax eftir miklum verðbreytingum á ákveðnum hlutum, gjarnan því sem ekki ratar í verðkannanirnar. Arijón banki tók yfir félagið og breytti skuldunum í hlutafé en seldi nú Haga til hlutafélags sem hann á sjálfur. Er ekki viss með vextina og greiðslur á þeim.

Einar Guðjónsson, 1.9.2011 kl. 16:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 912

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband