17.12.2009 | 21:50
Fyrsti hreppurinn í Möllersklúbbinn.
Álftanesið er komið í Möllersklúbbinn fyrst sveitarfélaga á þessu ári. Fleiri hreppar eru á leiðinni eins og
Reykjanesbær, Bolungarvík, Reykjavík, Hafnarfjörður, Kópavogur og sennilega langflestir nema Skilmannahreppur.
Heimild til að leggja á 10% álag á útsvar þýðir að Sveitastjóradólgarnir vinna í fyrstu lotu en almenningur tapar. Skattarnir eru bara hækkaðir en dólgarnir sitja áfram og fá að eyða áfram eins og vitleysingar. Þeir munu ekki bera neina ábyrgð á bruðlinu og spillingunni og halda áfram sínum fínu kjörum.
Möllersklúbburinn gengur nefnilega út á að verðlauna sveitarstjóradurgana sem fara illa með almannafé og jafnframt fá þeir rýmkaðar heimildir til að skatta almenning. Svo grenja þeir út úr Alþingi meir pening.
10% álag á útsvar á Álftanesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 1136
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Almenningur tapar, hrunaliðið situr áfram við kjötkatlana þannig fara gjaldþrot fram ríki og bæ.
Maður veltir því einnig fyrir sér hvort húseigendur almennt þoli 40% hækkun fastignagjalda ef þetta er það sem koma skal. Það verða kannski fleiri hús jöfnuð við jörðu á Álftanesi þó ekki sé nema í sparnaðarskini.
Magnús Sigurðsson, 17.12.2009 kl. 22:02
Þetta eru fótspor skólabróður míns, Sigga Komma. Svona hefur vinstri villan leikið Álftanes.
Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 17.12.2009 kl. 22:28
Ómar, þetta hefur ekkert með flokka að gera. Sveitarfélögin hafa allra handa flokka.
D í Kópavogi, S í Hafnarfirði, B í Skagafjarðarsveit etc. Skiptir engu máli því þetta virðist vera tegund sem nær yfirhöndunum í hreppunum og eyðir þeim.
Einar Guðjónsson, 17.12.2009 kl. 23:22
Hef það frá mjög áreiðanlegum heimildum að Sigurður Magnússon og bæjarstjórn hans hafi algjörlega rústað bæjarfélaginu Álftanesi. Í ljósi þess er grátbroslegt að sjá þennan mann eins og aumingja í seinni fréttum sjónvarps, vælandi yfir meiri álögum á íbúa.
Ég sé Einar að þú óskir þess að Rvík og Kópavogur séu í þessum hópi, væntanlega vegna einhverja eigin gremju?
Guðmundur Björn, 17.12.2009 kl. 23:22
Fer þessi aukaskattlagning ekki að daðra óþægilega við jafnræðisreglu?
Kveðja að norðan.
Arinbjörn Kúld, 17.12.2009 kl. 23:22
Guðmundur, þetta eru bara staðreyndir; Kópavogur og Reykjavík eru á leið í Möllersklúbbinn.
Einar Guðjónsson, 18.12.2009 kl. 00:37
En þú mátt ekki gleyma því Einar, að lengsta rennibrautin í íslenskri sundlaug, er á Álftanesi!
Jóhann (IP-tala skráð) 18.12.2009 kl. 01:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.