Alvarlegar ranghugmyndir starfsmanna

Það er deginum ljósara að starfsmenn og stjórnendur Straums þjást af alvarlegum ranghugmyndum um getu sýna og mikilvægi í fæðukeðjunni. Meðal kröfuhafa eru Íslenska Ríkið ( Langanesbyggð 2009 ehf ? ) og Íslenskir lífeyrissjóðir en félagar í mörgum þeirra hafa árslaun á bilinu tvær og hálf milljón til fjórar milljónir í árslaun ). Hugmyndir stjórnenda eru auðvitað siðblinda á háu stigi og ekkert sérlega merkilegt við þær. Þeir lofa að sitja  á góðum launum og halda vinnunni þangað til  styttir upp á mörkuðum og betra verð fæst fyrir eignirnar. Allt í góðu með það. En þessir bankamenn fengju og fá hvergi vinnu í neinum öðrum banka í veröldinni  nema þessum. Bankar sem vilja láta taka sig alvarlega

myndu ekki vilja sjá þá í vinnu. Efast raunar um að aðrir bankar myndu vilja lána til kaupa á fyrirtækjum  af þessum mönnum. Nú ættu kröfuhafar m. talið lífeyrissjóðir og ríkið að óska eftir því að þessir menn fari í geðrannsókn. 


mbl.is Stjórnendur vilja milljarða í bónus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Linda Óskarsdóttir

Heyr, heyr !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!    Þessi Óttar og hans fólk eru greinilega ennþá ár árinu 2007, þegar allir svindluðu og sköruðu eld að sinni köku. VONANDI komast þau ekki upp með það, en hver veit?

Katrín Linda Óskarsdóttir, 18.8.2009 kl. 20:55

2 Smámynd: Einar Guðjónsson

Félagar í lífeyrissjóðunum geta haft áhrif og að auki má alveg samþykkja endurreisnaráætlun bankans en með nýju fólki og á lægra kaupi.

Einar Guðjónsson, 18.8.2009 kl. 23:46

3 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Þessi Óttar Pálsson er gráðug lögfræðinga afæta sem hefur ekki hundsvit á bankastarfsemi.   Hvað er þetta viðrini að vilja upp á dekk?  Það á að sturta svona pakki niður hið fyrsta.  Það er skandall að þessi auli skuli hafa verið ráðinn sem forstjóri bankans.  Fékk dóm á sig fyrir innherjasvik fyrir nokkrum árum.

Guðmundur Pétursson, 19.8.2009 kl. 02:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 901

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband