17.8.2009 | 12:35
55 þúsund íslendingar þegar í útlöndum
Fólksflóttinn er löngu hafinn.Þannig voru þegar fyrir tveimur árum um 55.000. íslendingar í útlöndum eða um 15% þjóðarinnar. Veit um marga sem skulda handrukkurum hins opinbera miklu meira en borgar sig að borga af ( í merkingunni of mikil húsaleiga/of há greiðslubyrði ). Þeir eru þegar farnir til Noregs. Lífskjör hér keppa ekki við það sem býðst á Norðurlöndunum eða í Kanada ( hér undanskil ég
skilanefndirnar ). Ekki bara hin peningalegu kjör heldur allt litrófið. Neytendavernd, borgararéttindi, verðlag, fjölskyldukjör, stjórnmálastéttin. Öll þessi atriði fá falleinkunn hér. Þá er engin vilji í samfélaginu um að hætta bullinu.
Óttast íslenskan spekileka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvað hefur þú búið lengi úti vinurinn?
persóna (IP-tala skráð) 17.8.2009 kl. 12:42
Það er samt ekki sama ástand og 1968 -69 því þá var nóg að gera á norðurlöndunum svo voru Ástralir á höttunum eftir iðnaðarmönnum. Núna er samdráttur í Svíþjóð og Ástralía er núna hálf lokuð.Kannski helst að fá vinnu í Norður Noregi, sá að það vantaði iðnaðarmenn þangað á einhverjum vinnuleitar vef.
Hörður (IP-tala skráð) 17.8.2009 kl. 13:38
Sé ekki að ég komi þessu sérstaklega við nema að maður er að búa sig undir að fara.
Hörður, Það er hægt að tala um samdrátt í Evrópu en ekki hrun eins og hjá okkur.
Vextir á Norðurlöndum hafa lækkað það mikið að þar hefur fólk meira til ráðstöfunar
þrátt fyrir samdrátt. Sú staðreynd ýtir efnahagslífinu upp á við og nú er 7% aukning á útflutningi víða í Evrópu.
Einar Guðjónsson, 17.8.2009 kl. 14:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.