Skuldsett arðgreiðsla

OR hefur á að skipa margri silkihúfunni á kaupjötunni. Nú er um að ræða fyrirtæki sem hefði aðeins 20 starfsmenn ef þetta væri orkufyrirtæki í nágrannalöndunum. Þarna er auðvitað aðalsilkihúfan Hjörleifur Kvaran sem fer með fyrirtækið eins og hann eigi það prívat.Um það gilda ekki stjórnsýslu eða upplýsingalög.Það ræður starfsfólk án auglýsinga. Það bruðlar eins og því sýnist og ákveður að greiða

arð til eigenda sinna með því að skuldsetja sig og þurka upp eigið féð. Þarf ekki aðallega að leggja niður sveitarfélögin í núverandi mynd og  þessa þörf fyrir aðrgreiðslur og gera það aftur að því sem það

var.Veitufyrirtæki sem seldi rafmagn og hita á kostnaðarverði til eigendanna/ notendanna. Bruðlkóngarnir í sveitarfélögunum tala um að  ef ekki hefði verið okrað á borgurunum þá hefði ekki verið hægt að greiða út arð sem aftur hefði þýtt að skera hefði niður þjónustu við borgarana. 

Er ekki verið að snúa hér öllu á hvolf ??  Þarf ekki bara að leggja sveitarfélögin niður í núverandi mynd ?? og breyta þeim í skólasamlög,  þá þyrfti enga borgarstjóra  og enga orkuveitustjóra ??.

Eins og sakir standa þá okrar  OR á borgurunum svo hægt sé að hjálpa aftur þeim sömu borgurum með ARÐGREIÐSLUM ( sic ). Er nokkur furða þó Hjörleifur láti mynda sig eins og hann væri

Napoleon  ?? 


mbl.is Arðgreiðsla OR rennur til samfélagsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er nú sammála þér í meginatriðum, nema með eitt. Þú talar um okur á borgurum.. Fyrir það fyrsta þá er orkuverð á Íslandi eitt það lægsta í öllum heiminum, í öðru þá hefur orkuverð lækkað síðustu 10 ár miðað við neysluvísitölu. Ef orkuverðið hefði fylgt henni þá væri það langtum hærra en er í dag. Finnst alltaf skrítið þegar íslendingar tala um hátt orkuverð, þetta sama fólk ætti að prófa að búa erlendis og borga orkureikninga þar. Það þarf ekki að fara lengra en til DK.

Elísa (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 20:00

2 Smámynd: Einar Guðjónsson

Skv. upplýsingum eurostat er orkuverð  jafnhátt á Íslandi ÁN VIRÐISAUKASKATTS

og í Danmörku en í Danmörku er hærri skattur á tiltekna notkun á rafmagni.Þetta var rétt fram til 6 október s.l. en þá lækkaði krónan svo í fyrsta sinn lengi er orkuverð lægst í Evrópu á Íslandi.

Einar Guðjónsson, 15.5.2009 kl. 20:25

3 identicon

Elísa,

Þetta er all rétt hjá Einari.  Stærsta vandamálið fyrir venjulegan borgara íslands er neyðsluvísitalan/verðtrygging.  Þessir útreikningar eru þvæla og sjálftaka á fé og ávallt vísað í til að réttlæta hækkanir.

Verðlagning orku fer eftir aðgengi að henni.  Ekki skortur af því á Íslandi en allt annað í DK.

OR hefur farið út fyrir sitt starfsvið ( eins og svo algilt er um fyrirtæki/stofnanir hér á landi ) og við erum að borga fyrir margt annað en orkuna.

itg (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 20:34

4 Smámynd: Einar Guðjónsson

Það þarf í raun að stofna hér öflug samtök skattborgara.Sem standa í eftirliti á því í

hvað skattarnir fara og hvernig opinber veitufyrirtæki haga sér. 

Einar Guðjónsson, 15.5.2009 kl. 20:44

5 identicon

Hefur þú prófað að búa í DK ? Fólk sparar heita vatnið svo svakalega því það er rándýrt! Var að tala við einn um daginn sem talaði einmitt um hvað íslendingar væru miklir kjánar að röfla um þetta því þar sem hann bjó þá var rafmagnið 10 falt dýrara.

itg - Hvað erum við að borga fyrir annað en orkuna með orkugjaldinu? Það er rétt að OR hefur farið út fyrir þetta venjulega hita og rafmagnssvið en við erum ekki að greiða fyrir það með orkuverðinu. Ertu með einhverjar skýrslur sem sýna fram á annað? Eða kemur þetta aðeins frá fjölmiðlum og umræðunni um það sem OR gerir. Þú talar um að verðlagning orku fari eftir aðgengi að henni.. ekki aðeins því, en það vita allir sem reka fyrirtæki að það er margt sem spilar þar inní. 

Ef við tökum orkuverð fyrir 10 árum og hækkum það í samræmi við vísitöluna þá ætti tonnið af heitu vatni að kosta í dag yfir 90 kr. fyrir utan skatt og rafmagnið yfir 10 kr. fyrir utan skatt.

Fólk oft gerir sér ekki grein fyrir því hvað það kostar að framleiða rafmagn og virkja. Hvað það kostar að halda þessu öllu gangandi svo að þú getir kveikt ljósin á morgnana. Það er hægt að kvarta og kveina yfir kostnaði við þetta allt saman, of mikið af starfsfólki ofl. en samt vill þetta sama fólk ekki bíða ef eitthvað fer úrskeiðis. Það vill fá þjónustu strax, en ekki hafa starfsfólk til að anna því. 

Ég er samt sammála því að það er fáránlegt að sveitafélögin þurfi að standa og falla með því hvort eitt fyrirtæki í eigu þess skili arði eða ekki. Auðvitað á það ekki að vera svoleiðis. Og auðvitað á fyrirtækið ekki að borga út arð á meðan starfsfólk tekur á sig launalækkun.

Elísa (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 23:12

6 identicon

Og já eitt enn, þegar þú miðar við krónuverð og gengisverð á orku þá ertu væntanlega ekki að taka með í reikninginn hversu hátt hlutfall af meðallaunum kostnaðurinn er í því og því landi. krónutalan, eða evrutalan, segir ekki alla söguna.

Elísa (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 23:17

7 Smámynd: Einar Guðjónsson

Orkuverð fyrir gengishrun var jafnhátt hér og í Danmörku en það var lægra í Finnlandi ( kjarnorka ), Svíþjóð ( olía  og kjarnorka) og Noregi en skattar á orku eru

mun hærri í Danmörku. Orka til neytenda er því aðeins dýrari í Danmörku en hér.M.v. kaupmátt launa kostar  orkan þar 1/4 af því sem hún kostar hér .Sama gildir um  Noreg og Svíþjóð . Allt þetta liggur fyrir hjá Eurostat ( www.eurostat.eu )

hagstofu Evrópu. Rafmagnið kostar yfir 10 kr á kílówattstund og tonnið af heitu vatni yfir 100 kr nú þegar. Við erum sveitarfélögin og ríkið greiðir framlög til skóla í sveitarfélaginu sem þau reka.Sveitarfélögin eru bara milliliður.OR er okur og fákeppnisfyrirtæki og umhverfissóði til viðbótar.OR okrar á notendum m.a. svo forstjórinn geti haft 40.000.000. í árslaun og fríar utanlandsferðir. 

Einar Guðjónsson, 17.5.2009 kl. 13:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 977

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband