Marcos fjölskyldan fræðist um spillingu.

Marcos fjölskyldan sem Akureyringar kusu til að standa á beit í bæjarsjóðnum er ákveðin í því að bæta sig og hefur fengið siðfræðing og stjórnmálafræðing til að upplýsa sig um siðferði í þeim siðblindusjó sem þau sigla í. Er að vísu viss um að þau hafa fallið á fyrsta prófinu og hafa látið beitarsjóðinn ( les: Bæjarsjóðinn ) borga þeim prófessorum fyrir kennsluna.
mbl.is Bæjarfulltrúar fá siðfræðifræðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Er það rétt ?? Borgar bæjarsjóður ??

Jón Ingi Cæsarsson, 25.8.2010 kl. 21:20

2 Smámynd: Einar Guðjónsson

Ályktunin er dregin af bæjar og borgarfulltrúum í fortíð. Sjálfsagt að spyrja á grundvelli Upplýsingalaga en óvíst hvort kjörnir fulltrúar fara eftir þeim. Ekki að sjá að slíkt námskeið sé í boði hjá HA. Er ekki myndin tekin á beitarskrifstofunni ?

Einar Guðjónsson, 25.8.2010 kl. 21:41

3 Smámynd: Sóley Björk Stefánsdóttir

Góð spurning. Verulega góð spurning!

Sóley Björk Stefánsdóttir, 25.8.2010 kl. 21:44

4 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Ef það er rétt að bæjarsjóður fjármagni og námskeiðið haldið á bæjarskrifstofum...af hverju eru þá ekki hinir fimm bæjarfulltrúarnir þarna.. mér sýnist að þetta sé námskeið í siðblindu en ekki námskeið um siðfræði reynist þetta rétt.

Jón Ingi Cæsarsson, 25.8.2010 kl. 21:48

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er ekki furða að L-listinn hafi burstað kosningarnar ef þetta er andinn.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.8.2010 kl. 22:18

6 Smámynd: Einar Guðjónsson

Svipan birtir eftirfarandi frétt og þar er talað um alla beitarfulltrúa, og réttilega sagt að aldrei fyrr hafi ein fjölskylda náð hreinum meirihluta á Akureyri. Hér er fréttin.

L-listinn fer á siðfræðinámskeið

Tilkynningar. 25. 8. 2010.
Eftir stórsigur í bæjarstjórnarkosningum á Akureyri í vor, þar sem L-listinn, listi fólksins, fékk 6 bæjarfulltrúa af 11, kom upp sú staða , sem ekki hefur verið á Akureyri áður, að eitt stjórnmálaafl náði hreinum meirihluta.
Vandi fylgir vegsemd hverri og völdum fylgir ábyrgð. Því ákváðum við að styrkja okkur með að fá fagfólk til að fara yfir siðfræði með okkur segir Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi L-listans.
Höfðum við samband við Guðmund Heiðar Frímannsson doktor í siðfræði, prófessor við Háskólann á Akureyri. Tók hann okkur vinsamlega og hefur sett upp fyrir okkur námskeið, sem við munum sitja, allir bæjarfulltrúar og formenn nefnda á vegum L-listans,lista fólksins. Þar mun Guðmundur, ásamt Grétari Þór Eyþórssyni doktor í stjórnmálafræði og prófessor við Háskólann á Akureyri fara yfir helstu atriði sem þetta varðar og leiðbeina okkur.
Námskeiðið verður að Borgum við Norðurslóð frá 16.30-19.30 miðvikudag og fimmtudag, 25. og  26 ág.

Eftir stórsigur í bæjarstjórnarkosningum á Akureyri í vor, þar sem L-listinn, listi fólksins, fékk 6 bæjarfulltrúa af 11, kom upp sú staða , sem ekki hefur verið á Akureyri áður, að eitt stjórnmálaafl náði hreinum meirihluta.

Vandi fylgir vegsemd hverri og völdum fylgir ábyrgð. Því ákváðum við að styrkja okkur með að fá fagfólk til að fara yfir siðfræði með okkur segir Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi L-listans.

Höfðum við samband við Guðmund Heiðar Frímannsson doktor í siðfræði, prófessor við Háskólann á Akureyri. Tók hann okkur vinsamlega og hefur sett upp fyrir okkur námskeið, sem við munum sitja, allir bæjarfulltrúar og formenn nefnda á vegum L-listans,lista fólksins. Þar mun Guðmundur, ásamt Grétari Þór Eyþórssyni doktor í stjórnmálafræði og prófessor við Háskólann á Akureyri fara yfir helstu atriði sem þetta varðar og leiðbeina okkur.

Námskeiðið verður að Borgum við Norðurslóð frá 16.30-19.30 miðvikudag og fimmtudag, 25. og  26 ágúst.

Share on Facebook

Einar Guðjónsson, 25.8.2010 kl. 22:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 928

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband