Sérmeðferð fyrir bankastarfsmenn sem keyra banka í þrot.

Kostulegt að sjá að '' lykilstarfsmennirnir'' sem keyrðu bankann í gjaldþrot skuli samt halda vinnunni og nú við að innheimta lánin sem ekki hafa tapast. Brennuvargarnir hafa líka fengið tak-markað ''banka'' leyfi til að hreinsa til í rústunum enda hafa þeir mesta '' þekkingu'' á hvar þeir kveiktu í og með hverju. Þetta er auðvitað íslenska aðferðin sem Haardeman, Ingibjörg og Steingrímur fundu upp.

Ég hef enga trú á að þetta fyrirtæki fái nokkur verkefni frá bönkum nema Glitnisrústunum. Allt er þetta örugglega gert framhjá kröfuhöfum í Glitni en starfsmenn Reviva eiga örugglega eftir að sjá til þess að

allar eignir þrotabúsins hverfi í þjónustu og innheimtugjöld til Revia. Það ætlar þeir greinilega að gera á næstu fimm árum.


mbl.is Glitnir í Lúxemborg stofnar umsýslufélag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vill benda þér á að Glitnir í Lúx fór aldrei í þrot.  Fyrirtækið á Íslandi gerði það.  Glitnir í Lúx var í blússandi plús og sennilega best rekna útibú bankans erlendis.

Bara svo þú vitir það áður en þú hraunar yfir starfsmenn þess.

Gaupi (IP-tala skráð) 11.8.2010 kl. 18:27

2 Smámynd: Einar Guðjónsson

Ekki eftir fréttinn að dæma því Glitnir  í Lúxemborg er í slitameðferð. Þess vegna ná starfsmenn Reviva að fitna á gjaldþrotinu á kostnað kröfuhafa. Ástæðan er auðvitað sú að kröfuhafarnir eru varnarlausir.

Einar Guðjónsson, 11.8.2010 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 978

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband