14.5.2010 | 12:05
Uppreisn gegn flokkseigendafélögum
Hluthafar í fjórflokknum hafa mjólkað bæjarsjóð í Kópavogi í langan tíma. Þar eins og um land allt eru borgararnir að rísa upp gegn þessu kerfi. Það er frábært framtak en þetta fólk hefur áttað sig á að spillingin er hvergi meiri en hjá sveitarfélögunum í landinu. Vinir og kunningjar í fjórflokknum hafa í raun fengið að vera á beit í bæjarsjóðum um land allt og tæmt þá hressilega.
Framtíðarmarkmiðið hlýtur þó að vera að koma sveitarfélögunum á öskuhauga sögunnar. Þau eru algjörlega óþarfur milliliður sem kostar almenning morðfjár.
Listi Kópavogsbúa gefur engin loforð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 1136
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mikil lifandis ósköp er þessi gamla "klisja" um fjórflokkinn orðin útjöskuð. Sem fyrrum Kópavogsbúi get ég ekki látið hjá líða að benda þér á að í næstum 2 áratugi hafa aðeins 2 flokkar ráðið öllu í Kópavogi, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur. Nær væri að segja að síðari hluta þessa tímabils hafi leiðtogi Sjálfstæðisflokksins og bæjarstjóri, Gunnar I. Birgisson, verið nær einráður í Kópavogi, svo lítilsigldir hafa meðreiðarsveinar og meyjar hans í flokkunum tveimur verið.
Ég get engan veginn skilið hvað fjórflokkurinn kemur bæjarmálum Kópavogs við, þar hafa Samfylking og Vinstri grænir nánast verið útilokuð frá öllum áhrifum enda stöðugt í minnihluta.
Og nú er svo komið að eftir samfelldan valdaferil Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í nær 2 áratugi er Kópavogsbær komin undir eftirlit ráðuneytis sveitarfélaga vegna hættulegrar skuldastöðu.
Sigurður Grétar Guðmundsson, 14.5.2010 kl. 13:32
Sveitarfélög eru ekki milliliður heldur tengiliður. Í sveit.
Á höfuðborgarsvæðinu á bara að sameina þetta í eitt.
Mér líst annar vel á hugmyndir Y-listans og framboð. Hvað stoðar að hlaupa eftir loforðum sem eru lygi ein. Betra að lofa minna og láta verkin tala.
Árni Þór Björnsson, 15.5.2010 kl. 20:53
Ég bý í Kópavogi og myndi ekki láta mig dreyma um að kjósa neinn af þessum fjórum flokkum, B, D, S og V. Ég treysti Krötunum og kommúnistunum engan veginn betur til að stjórna bænum en Íhaldinu og Afturhaldinu. Þannig að ég mun hiklaust kjósa Y-listann. Ekki aðeins vegna þess að ég hef útilokað hina fjóra flokkana (og Næstbezta flokkinn), heldur vegna þess að mér lízt vel á þeirra markmið.
Vendetta, 16.5.2010 kl. 14:45
Sigurður hugmyndafræði þessara flokka er sú sama. Ef þú skiptir Kópavogi út og setur Hafnarfjörð í staðinn og Lúðvík í staðinn fyrir Gunnar og S í staðinn fyrir D. Þá er komin frásögn um Hafnarfjörð sem er alveg jafnrétt og athugasemd þín um Kópavog.
Einar Guðjónsson, 16.5.2010 kl. 16:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.