Mikilvægt að muna

Hafi markaðsverðmæti þessarar íbúðar verið 25 milljónir en skuld við Lífeyrissjóðinn verið 25 milljónir en eignin slegin honum á 20 milljónir þá er þolandinn í uppboði þessu skuldlaus við Lífeyrissjóðinn skv. 57.gr. Laga um Nauðungarsölu og verður ekki sóttur um mismuninn. Það er mikilvægt fyrir þolendur í uppboðsmálum að vita þetta.

Leysi uppboðsþoli eignina ekki til sín aftur þá situr þessi Lífeyrissjóður uppi með eign sem skilar honum litlu og þessi sala verður því til þess að ávöxtun sjóðsins verður lítil eða minni en engin. Sem aftur þýðir að sjóðurinn þarf að minnka lífeyrisgreiðslur.

Þessi sjóður er hinsvegar greinilega ekki í samfélagi heldur bara einn á ferð. Því miður gleymdi hann að átta sig á samhengi hlutanna.


mbl.is Reyndu að stöðva uppboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Fyrir fólkið ?

Hildur Helga Sigurðardóttir, 4.3.2010 kl. 13:34

2 Smámynd: Einar Guðjónsson

Á Mars ?

Einar Guðjónsson, 4.3.2010 kl. 14:25

3 Smámynd: Garún

Húsið mitt fer á uppboð 13.mars að kröfu söfnunarréttinda eitthvað lífeyrissjóðanna fyrir 480.000 kr. 

Garún, 4.3.2010 kl. 18:58

4 Smámynd: Einar Guðjónsson

Þá bera þeir samt ábyrgð á að tryggja að þú fáir mismun á markaðsverði og 480.000 kr og verða sóttir í dómsmáli um hann. Séu aðeins boðnar upphæðir sem eru langt frá markaðsverði þá á Sýslumaður að blása uppboðið af og reyna aftur.

Úrræði bankanna í skuldamálum heimilanna eru í raun í anda Laga um Nauðungarsölu. Fólk fær að skulda markaðsverð íbúðarinnar sem það býr í og bankinn gengur ekki að því sem eftir stendur SVO FREMI FÓLK sé tilbúið til að borga áfram af láni upp að  markaðsverði. Skuldi fólk 30 millur í húsi sem er 20 millur að markaðsverði þá borgast 20 millur með sölu á Nauðungaruppboði ÓHÁÐ UPHÆÐINNI SEM HÚSIÐ ER SELT Á Á UPPBOÐINU: Afgangurinn innheimtist ekki og því verður bankinn að afskrifa muninn en ekki er

hægt að innheimta 10 millur hjá þeim sem ekkert á.

Garún myndi tala við ORATOR út af söfnunarsjóði Lífeyrisréttinda en hann á aðeins að sjá um að fólk greiði í Lífeyrissjóð og því máttu alveg greiða í annan sjóð og getur þannig fullnægt lagaskyldunni. 

Einar Guðjónsson, 4.3.2010 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 898

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband