Ekki nógu duglegur að ljúga

Þorsteinn hefur verið í sérflokki meðal upplýsingafulltrúa fyrirtækja. Yfirleitt  hafa þeir sem þetta starfsheiti bera einmitt reynt að halda frá almenningi upplýsingum en það hefur ekki verið raunin hjá Þorsteini. Hefur hann að mínu viti verið frekar málefnalegur.

Nú eigum við sjálfsagt eftir að sjá einhverja Samfylkingarstjörnu  taka að sér djobbið og reynt verður að halda öllu leyndu. Er kannski verið að ráða Einar Karl ?


mbl.is Þorsteinn hættur hjá Landsvirkjun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rauða Ljónið

Vont að missa Þorsteinn hann hefur staði sig afar vel í starfi.

Kv. Sigurjón Vigfússon

Rauða Ljónið, 21.1.2010 kl. 14:48

2 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Ekki nógu laginn við að ljúga því að hann hefur á stundum æst náttúruverndarsinna upp með málflutningi sínum. Nýir stjórnendur telja það kannski ekki ráðlegt - eða hvað?

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 21.1.2010 kl. 14:51

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Ef eg man rétt þá er Þorsteinn heimspekingur að mennt. Ekki beint í samræmi við menntun að gegna þessu starfi þar sem útskýra þurfti og jafnvel réttlæta umdeildar ákvarðanir. En af einhverju verða menn að lifa þó það sé þvert  um geð flestra.

Spurnig hver verður valinn í þetta starf sem í eðli sínu er og verður alltaf umdeilt. Annars má segja að Þorsteinn hafi staðið sig nokkuð vel í þessu erfiða hlutverki. Þó Kárahnjúkavirkjun hafi ekki verið mér að skapi þá er ákvörðunin um hana ekki Þorsteini að kenna. Þetta var jú lifibrauðið hans.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 21.1.2010 kl. 15:12

4 identicon

Hilmar er ágætur. Hann var í denn ritstjóri Lærdómsrita Bókmenntafélagsins með Þorsteini Gylfsyni. Hilmar kom m.a. að útgáfu Lofi heimskunnar eftir Eramus frá Rotterdam og einnig Lofi lyginnar eftir Þorleif Halldórssson.

Páll Lúðvík Einarsson (IP-tala skráð) 21.1.2010 kl. 15:35

5 identicon

Leiðrétting: Nafnið er auðvitað Þorsteinn Hilmarsson en ekki Hilmar. Mæli annars með þessum bókum.

Páll Lúðvík Einarsson (IP-tala skráð) 21.1.2010 kl. 15:41

6 Smámynd: Einar Guðjónsson

Ingólfur held nú samt að hann hafi verið eins málefnalegur og hann mögulega gat.

Berðu hann t.d. saman við blaðurfulltrúa skilanefnda og banka eða stjórnvalda eða  FL Group eða Icelandexpress ?? 

Einar Guðjónsson, 21.1.2010 kl. 15:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 901

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband