Færsluflokkur: Bloggar

Ríkisframlög minnka

Ríkið hefur nú ákveðið að lækka greiðslur til bankanna fyrir að geyma peninga Lífeyrissjóðanna í kjallara Seðlabankans. Sem kunnugt er þá er SÍ svona fyrirtæki sem greiðir bönkunum pening fyrir að geyma peninga sem Nýju fúsk bankarnir taka á móti í afgreiðslum sínum vítt og breitt um landið. Seðlabankinn geymir svo þessa peninga en greiðir nýfúskinu fyrir ? Einkennilegt en satt. Fjöldinn allur af fólki kemur nálægt þessari atvinnubótavinnu sem Ríkisstjórnin stendur fyrir. Legg til að þessir pappírspeningar verði frekar settir í gjótur á Reykjanesi og fólki svo borgað fyrir að týna þá saman. Það yrði til stuðnings '' atvinnubótastarfi'' á Reykjanesi.
mbl.is Vextir lækka um 0,5 prósentur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á ábyrgð ALLRA borgarfulltrúa

Ábyrgðin á óráðsíunni í Reykjavík er ALLRA borgarfulltrúa en þeir hafa allir sameinast um bílífi á kostnað allra Reykvíkinga. Borgarfulltrúar sem eyða í prívatferðalög hundrað milljónum á ári árum saman. Reka einkabílaþjónustu fyrir sig og sína. Ráða vini og kunningja í stöður sem búnar eru til fyrir þá getur ekki verið sjálfrátt. Um þetta ráðslag hefur verið algjör samstaða meðal hinna 30 vammlausu borgarfulltrúa.


mbl.is Gengið of nærri grunnþjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skapandi hagfræði

Már er klárlega skapandi hagfræðingur en hinn sérstaki saksóknari gegn mótmælendum á þingpöllum fékk einnig sporslu  sem formaður stjórnar Seðlabankans. Í hlutverki sínu sem stjórnarformaður hefur hún hafið sókn í kjaramálum fyrir Má. Vill að kjaradómur verði hundsaður en um leið hefur komið á daginn að hún lofaði upp í ermina á sér þegar hún bauð Má kjör sem hún gat ekki staðið við.

Hagfræðin og stærðfræðin á svar við öllu og leiðin til hærra kaups fyrir Má er sennilega að semja um tölulega lækkun t.d. 900 þús en í öðru veldi. Þá lækkar Már í kaupi en fær samt 1800 þúsund á mánuði en verulega meira en Kjararáð ákvað.

Það verður þó að segjast um Má að hann kann mannasiði og stjórnsýslu en mér er sagt að hann hafi í dag svarað flestum póstum sem hann fékk frá almenningi er spurðist fyrir um launakjör. Eitthvað sem hann gæti örugglega kennt Talhólfinu í Viðskiptaráðuneytinu að gera.

Legg að lokum til að Einar Karl verði nú gerður að Seðlabankastjóra.
mbl.is Már myndi ekki þiggja launahækkunina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samhljómur við forystu ASÍ

Forysta ASÍ er auðvitað í alveg sama pakka og tók þátt í að ræna félagsmenn sína og samfélagið. Það er krafa fólksins í landinu að skipt verði um forystu ASÍ og óspillt fólk verði þar í forsvari. Gylfi er ekki vammlaus og átti þátt í að búa til þetta sniðmengi sem bankarnir, ASÍ og samtök atvinnurekenda eru.

Engin munur er á bönkunum og forystu ASÍ, Gylfi með 10 sinnum hærra kaup en sínir félagsmenn og varð forseti ASÍ eftir að hafa stýrt fjárfestingarbanka ASÍ eigendanna. Mér finnst því þessi ummæli eiga við hann sjálfan. Það verður engin sátt innan verkalýðshreyfingarinnar fyrr en Gylfi hefur sagt af sér enda er hann sjálfur einn af bankaræningjunum þó hann hafi ekki ratað á síður skýrslu Rannsóknarnefndarinnar enda var henni ekki ætlað að kortleggja spillinguna innan ASÍ. 

Að lokum má ekki gleymast að óska almennum félagsmönnum til hamingju með daginn og vonandi sér efnahagsbrotadeildin um að skipta um forystu hjá ASÍ og samtökin öðlist þann virðingarsess sem félagsmenn eiga skilið.


mbl.is Gylfi: Bankaræningjar í sparifötum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hönnubirnurnar ofmetnar

Hönnubirnur hinna gömlu spilltu flokka sem eytt af skatttekjum Reykvíkinga í vini, kunningja og sig sjálfa hafa verið algjörlega ofmetnar í umræðunni. Talað hefur verið um að Hannabirna númer 1 hafi staðið sig í Borgarstjórn. Enginn kannast hinsvegar við það nema hún sjálf. Kjósendur spurðir í leyni hafna henni algjörlega en starfsmenn Reykjavíkurborgar sem eiga vinnuna sína undir henni eða hún hefur kunningjaráðið gefa henni prik í könnuninni. Allir aðrir vilja hana út. Enn er tækifæri fyrir óháð framboð að bjóða sig fram og við getum því enn vonað að flórflokkarnir verði þurrkaðir út.
mbl.is Meirihlutinn fallinn í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er '' Þjóðstjórn'' í borginni

Þessi frétt er gömul en í Reykjavík er þjóðstjórn 15 borgarfulltrúa og hundrað embættismanna. Þetta fólk hefur myndað stjórn sem sér um þá sjálfa, heimilisreksturinn og vinina. Þjóðin í Reykjavík er þetta fólk.
mbl.is Útiloka ekki „þjóðstjórn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vindhögg

Borgarfulltrúar í Reykjavík vilja auðvitað vera eins og þingmenn en hreppsnefndin í Reykjavík álítur að allt snúist um sig. Nú á að kanna og kortleggja spillinguna  þar en þeim datt það sjálfum ekki í hug fyrr en í fyrradag. Tilgangurinn er sjálfsagt að '' svæfa'' umræðuna um spillinguna innan Reykjavíkurborgar.

Sannleikurinn er sá að aðeins sorphirðan og skólarnir vinna eftir lögum og reglum og það gerist þrátt fyrir  Borgarstjórn og hinar þykku og dýru raðir af yfirmönnum með milljón plús í mánaðarlaun.

Sannleikurinn er sá að hvergi kostar spillingin eins mikið á íbúa og í Reykjavík. Níutíu milljóna króna ferðakostnaður  á ári fyrir hina 15 útvöldu sannar það. Viðamikil viðskipti Borgarinnar við fyrirtæki í eigu borgarfulltrúa og fjölskyldna þeirra sanna það. Dýrir húsaleigusamningar við einkavini Borgarfulltrúa sanna það. Breytingar á deiliskipulagi með korters fyrirvara sanna það. Brask og glórulausar '' fjárfestingar'' OR  sanna það. Viðamiklar kunningja og vinaráðningar sanna það.

Sanniði til, nefndin verður örugglega skipuð hinum týnda innri endurskoðanda og borgarlögmanni þannig að allir geti hlegið sig máttlausa. Auðvitað á að leggja niður Sveitarfélögin og koma peningunum aftur til borgaranna.


mbl.is Vilja rannsókn á áhrifum hrunsins á borgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjármálalífið í kirkjugarðinn

Á Íslandi er ekkert fjármálalíf í þeim skilningi sem menningarþjóðir þekkja. Yfirmannað ríkisstyrkt okurkerfi sem hefur fengið að grassera hér alltof lengi. Keyptir og spilltir þingmenn og ónýt stjórnsýsla hafa leyft bankakerfinu að reka hér viðamikið okurlánakerfi. Kerfi sem engin treystir í landinu. Núverandi kerfi mun aldrei eiga nokkurn þátt í neinni uppbyggingu hér til þess er það ekki hæft hvorki rekstrarlega né siðferðislega.
mbl.is Erfitt fyrir réttindalítið fólk að verjast hrægömmum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er Efnahagsbrotadeildin ?

Er undrandi yfir því að Efnahagsbrotadeildin skuli ekki vera komin með fasta starfstöð hjá Gildi ? Fyrst að sjóðfélagar vildu ólmir halda fína fólkinu í vinnu áfram hjá Gildi þá er eina von minnihlutans Efnahagsbrotadeildin eða Mannréttindadómstóll Evrópu. Er þetta ekki mesta tap lífeyrissjóðs í Íslandssögunni og það sem meira er, rekstarkostnaður sjóðsins við að tapa þessum peningum var um 300 milljónir. Er þá ekki talin með kostnaður Glitnis vegna kaupa á laxveiðileyfum handa Vilhjálmi og Fjárfestingarstjóranum.
mbl.is 3,67 milljarðar töpuðust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bresnev miklu betri

Hvernig má það vera að Ríkisvaldið og þjóðþingið í lýðræðisþjóðfélagi skuli setja lög til að innheimta tíund handa forstjóra SA og hans fjölskyldu ( dæmt mannréttindabrot í gær ) og setur svo líka lög sem leyfa honum að sitja í stjórn og eyðileggja lífeyrissjóð launafólks sem hann á ekkert í ? Bresnev hefði ekki látið sig dreyma um svona þjónkun í Æðstaráðinu.
mbl.is „Menn eru stjörnuvitlausir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband