Færsluflokkur: Bloggar
2.7.2010 | 14:01
Réttaröryggi bankanna tryggt.
Hækkun á þingfestingargjöldum hlýtur að skýra þessa fækkun. Þá hafa öll önnur gjöld hækkað nema beiðni um gjaldþrotaskipti en það kostar nú miklu minna að óska eftir gjaldþroti einhvers.
Þessi hækkun gerir að verkum að almenningur og minni fyrirtæki hafa ekki efni á að fara í dómsmál. Aðeins hinir ríku og svo hinir ríkistyrktu bankar og hin ríkisstyrktu fjármögnunarfyrirtæki. Þessi fyrirtæki eru aldrei látin fara á hausinn og panta bara ríkisframlag þegar þeim dettur í hug.
Lækkun á gjaldi fyrir að krefjast gjaldþrots er auðvitað gerð til að hjálpa bönkunum í baráttunni fyrir okurlánastarfseminni.
Hækkun dómstólagjaldanna er í raun ein af mörgum fasískum aðgerðum stjórnarinnar, dómstólarnir eru opnir almenningi en hann hefur ekki efni á að mæta. Þetta var að langmestu leyti gert að frumkvæði Dómsmálaráðherrans sem vildi ekki auka framlög til dómstólanna þrátt fyrir fyrirséða aukningu í fjölda dómsmála.
![]() |
Veruleg fækkun nýrra mála |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.7.2010 | 20:29
Eigendurnir eru þessu ekki sammála.
Það er samstaða meðal eigendanna ( sem er nú aðallega einn ) um að Haraldur Flosi eigi að fá þægilega innivinnu. Það er hinsvegar engin samstaða meðal eigendanna um það því eigendur OR hafa ekki verið spurðir. Eigendur hennar eru nefnilega notendur hennar: íbúar Reykjavíkur, Akraness, Borgarfjarðar og einhverra fleiri hreppa sem ég kann ekki að nefna.
Hér er því einhver stór misskilningur á ferðinni hjá aðstoðarmanni Jóns Gnarr Borgarstjóra.
![]() |
Samstaða meðal eigenda OR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.7.2010 | 17:20
Þægileg innivinna ?
Besti flokkurinn var kosinn til að færa spillinguna út og hafa hana uppi á borðinu. Ráðning besta vinar borgarstjóra í '' starf'' hjá OR er bara í anda þess sem hefur tíðkast, því miður. Starfið er að vera á jötunni og njóta fríðinda. Geta súnnað sig á kostnað þeirra sem kaupa rafmagn og hita af OR. Það sama gildir því miður um alltof marga hjá Reykjavíkurborg.
Hélt að þetta lægi allt saman ljóst fyrir.
![]() |
Draga lögmæti starfandi stjórnarformanns OR í efa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.6.2010 | 17:18
Pöntun ?
![]() |
Vilja skoða lagasetningu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.6.2010 | 12:10
Frankó og Noriega ?
Það er með ólíkindum að forsvarsmenn ( á að segja eigendur ? ) Seðlabanka og FME skuli gefa út tilmæli um hvernig ræna eigi almenning.Tilmæli um hvernig þjófagengin eigi að haga sér.
Starfsfólk bankanna fær ekki kaupið sitt nema ræna almenning. Ekki veit ég hvar þetta endar nú þegar Seðlabanki og FME hafa ákveðið að gefa skít í Dómsvaldið.
Er þetta ekki valdarán ? hvar er loftrýmisgæslan og hvar er Ríkislögreglustjóri ?
![]() |
Í þágu almannahagsmuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.6.2010 | 11:30
Áfram ræningjabæli.
![]() |
Engin rök fyrir að vaxtakjör haldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.6.2010 | 14:15
Frábær þessi Gylfi
Þessi Gylfi er auðvitað frábær starfsmaður samtaka fjármálafyrirtækja og það verður því að hlusta á allt sem hann segir með fyrirvara. Raunar snjallt hjá samtökum fjármálafyrirtækja að láta ríkið borga þessum starfsmanni sínum laun, já meira að segja Ráðherralaun fyrir að flytja þessi erindi fyrir bankana.
Er ekki annars nauðsyn á að lánareiknivélar bankanna verði löggiltar eins og tíðkast um vogir þannig að viðskiptavinir '' bankanna'' geti treyst útreikningum þeirra ? Getur ekki Gylfi sem að talskall fjármálafyrirtækjanna reddað því ASAP ?
![]() |
Segir sveiattan" við málflutningi Gylfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.6.2010 | 10:33
Og varaþingmaður í fyrra lífi.
![]() |
Segir saksóknara vanhæfan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.6.2010 | 23:17
Hvað með eigendurna ?
Starfsmenn vilja áheyrnarfulltrúa ? stjórnarfundir eiga auðvitað að vera aðgengilegir öllum beint á netinu. Það sem fram fer þar á allt að þola dagsljósið en ef það gerir það ekki þá er eitthvað að. Því miður er mikið að í rekstri OR og þess vegna finnst starfsmönnum að þeir þurfi áheyrnarfulltrúa. OR er í eigu notenda sinna og þess vegna eiga stjórnarfundir að vera á netinu og þess vegna á bókhald OR að vera aðgengilegt í rauntíma á netinu. Ástæðan fyrir því að það er ekki opið öllum er auðvitað sú að það þolir ekki dagsljósið. Á meðan það er ekki aðgengilegt á netinu í rauntíma þá vona ég að starfsmenn Efnahagsbrotadeildar séu með fasta starfstöð í höfuðstöðum hennar. Það er miklu mikilvægara heldur en að vera með starfandi stjórnarformann. Starfandi stjórnarformaður er algjör óþarfi og ekki til neins.
![]() |
Starfsmenn OR vilja áheyrnarfulltrúa í stjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.6.2010 | 12:20
Okkar Hómer
![]() |
The New York Times skrifar um Jón Gnarr |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.5.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 1359
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar