Færsluflokkur: Bloggar
31.7.2010 | 13:22
Orkuokurfyrirtæki.
Það er ýmislegt skrítið við orkuokurfyrirtæki landsins. Upphaflega verða þau til sem n.k. neytendakaupfélög af íbúum á notkunarsvæðinu. Tilgangurinn var að tryggja íbúunum hita og rafmagn á sem ódýrustu verði. Íbúarnir lögðu gjarnan til lánsfé sem hreppurinn ábyrgðist. Þegar svo okur og ræningjaþjóðfélagsgerðin nær yfirhöndinni á Íslandi upp úr 1990 þá fara að myndast '' eigendahópar'' sem er þá klíkan sem ræður heimildinni til að skatta borgarana í hreppnum og vinir hennar sem ráðnir eru í hópum til að '' stýra'' orkuokurfyrirtækjunum. Í OR er þetta hvað skýrast en skipulögð eyðilegging hennar hefst í raun með valdatöku R-listaklíkunnar á borgarsjóðnum og OR. Draumurinn um heimsyfirráð verður til meðal borgarstjórans og gamla nágrannans sem skipaður var forstjóri. Síðan þá
hefur bílífi OR bara aukist. Milljarða höfuðstöðvar með helstu þægindum fyrir meðlimi nómenklatúrunnar, bílum undir prívatferðir stjórnenda, veislueldhúsi, líkamsræktarstöð og kampavínsveislum. Kostaðra utanlands og sumarfrísferða helstu stjórnenda. Fyrirtækið allt var og er andsetið óhæfum stjórnendum sem síðan keyrðu fyrirtækið í þrot m.a. með hinni umhverfisfjandsamlegu Hellisheiðarvirkjun og bílífi.
Í þessari frétt er talað um arðgreiðslur til '' eigenda'' sem væntanlegu eru þá þeir sem standa á beit í borgarsjóðum landsins og stjórnenda sem taka sinn '' arð'' í ofurlaunum og '' fríðindum''. Hinir eiginlegu eigendur sem eru íbúarnir fá ekki rönd við reist og hafa þurft að sætta sig við dýrustu orku í Evrópu og 33% hækkun á verði á síðustu tveimur árum. Þeir virðast ekki eiga neina bandamenn hvorki á þingi né í hinum löngu úreltu sveitarfélögum.
![]() |
Orkufyrirtæki greiða lítinn arð til eigenda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.7.2010 | 14:15
Framgangur í starfi ?
Er á þeirri skoðun að hún passi ekki heldur í þetta starf. Var upphaflega ekki verðleikaráðin og hefur nálgast aðstoð við kúnnana með einkennilegum hætti og aldrei þorað að gagnrýna bankanna í starfi sínu. Þá hefur stofnunin meira unnið með bönkunum og kerfinu gegn fólki því miður. Þessi stofnun þarf hugmyndaríkan forstöðumann.
Hitt er svo annað mál að Lögin um umboðsmann skuldara eru ekki neitt neitt og hann má ekkert gera og hefur engin úrræði. Bara svona eitt af þessum vindhöggum Félagsmálaráðherrans og ríkisstjórnarinnar. Má kannski segja að ráða hefði átt þann umsækjanda sem þyngst framfæri hefur eða er gjafmildastur. Því embættið er bara launatékki frá bönkunum n.k. kauptékki fyrir fína fólkið í klíkunni.
![]() |
Ætlar að krefjast rökstuðnings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.7.2010 | 11:42
Launin '' afkomu'' tengd ?
Bankakerfið á Íslandi er merkilegt og nýtur niðurgreiðslna frá Ríkissjóði langt umfram aðrar atvinnugreinar. Þannig þiggur landbúnaðurinn niðurgreiðslur sem nema aðeins brotabroti af þeim ríkisstyrk sem bankarnir fá.
Annað sem er sérstakt við hina gjaldþrota banka er að sömu stjórnendur sitja þar áfram að mestu leyti og hafa jafnvel hækkað við sig kaupið þrátt fyrir heimsmet í gjaldþrotum. Ef um hefði verið að ræða veitingastað eða samlokugerð eða vélasala þá hefðu stjórnendur þeirra misst launagreiðslur um leið og gjaldþrotið varð staðreynd. Um hina íslensku '' banka'' gilda allt önnur lögmál. Þar þurfa rekstrartekjur ekki að taka mið af rekstrargjöldum og kaup stjórnenda verður bara til á ríkis '' himnum''.
![]() |
Landsbankamenn með lág laun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.7.2010 | 20:14
Tussan í menntamálaráðuneytinu
![]() |
Ekkert óeðlilegt við tölvupóst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.7.2010 | 15:03
Bara fréttatilkynning.
Málið verður leyst með fréttatilkynningu en svo verður ekkert gert. Þannig afgreiðir ríkisstjórnin öll mál.
Magma verður áfram eigandi HS Orku eins og ekkert hafi í skorist.
![]() |
Farvegurinn er fundinn. |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.7.2010 | 16:12
Allir fá sitt fram.
Fer þetta ekki bara eins og alltaf. Þau verða sammála um að styðja ekki stjórnina nema hætt verði við.
Fréttatilkynning verður send út um að kaup Magma á HS Orku verði bönnuð og Guðfríður og félagar lýsa því yfir að þau styðji stjórnina. Magma verður svo áfram eigandi að HS Orku eins og ekkert hafi í skorist.
Engin gerir neitt en stjórnmálaklíkan verður rosalega ánægð með sig og að hafa náð öllu '' sínu'' fram.
Þannig er lífið í Ræningjabæ.
![]() |
Sérstakar yfirlýsingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.7.2010 | 16:04
Hittast á miðilsfundi.
Steingrímur er hinn nýi Páll Pétursson íslenskra stjórnmála. Stóryrtur um hitt og þetta en gerir svo annað hvort ekkert eða þveröfugt við það sem hann lofar. Nú lofar hann að þau Jóka muni bregða sér á miðilsfund og ferðast aftur í tímann og breyta fyrri ákvörðun sinni um að gera ekkert og gera nú eitthvað á miðilsfundinum. Stöðva kannski ''kaup'' Magma á Geysi Grín og HS Orku.
Allir sem eitthvað þekkja til verka Steingríms í stjórnmálum vita af LANGRI reynslu að hann gerir ekkert en hefur fögur orð um að þetta hafi verið mistök. Hann mun áfram vinna eins og gólftuska fyrir Beaty.
![]() |
Samstarfið ekki í hættu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.7.2010 | 18:11
Plebbarnir ráða áfram
Gangi þessi '' sala'' eftir, þá sigra plebbarnir en þetta hófst með því að strákarnir í OR þessir sem enga kunnáttu hafa í rekstri keyptu hlut í HS Orku þvert á samkeppnislög. Þeir '' seldu'' svo áfram til
Kanadamannsins Nasty en lánuðu honum fyrir kaupverðinu. Það er ekkert sniðugt við þessa '' sölu'' og auðvitað eigum við að mótmæla henni eins og Björk hvetur okkur til.
![]() |
Björk: Rannsóknarnefnd um Magma málið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.7.2010 | 23:03
Unnur kostar tíaur
![]() |
Undrast ummæli Ögmundar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.7.2010 | 18:01
Tekur aldrei ákvarðanir
![]() |
Engar ákvarðanir verið teknar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.5.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 1358
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar