Færsluflokkur: Bloggar

Fari í talþjálfun.

Gylfi á að fara í talþjálfum en hann talar iðulega eins og hann sé baráttumaður launafólk en reynist svo  ekki meina neitt og er mesti fjármagnsvinur. Úlfur í sauðargæru en er svo allur á innsoginu.
mbl.is Tóku atvinnumálin í gíslingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Villta vestrið ?

Bankasýslan brýtur lög en engin gerir neitt. Steingrímur gerir ekki neitt, Skrudda gerir ekki neitt. Þó er hvergi að finna neitt í Lögum um að Fjármálaráðherrann megi ekki skipta sér af og benda á  lögbrot. Hann getur skipað nýja stjórn og hann getur hringt í lögregluna en Bankasýslan er að víla með peninga ríkisins.
mbl.is Má ekki mæta bankastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reglurnar mjög þröngar ?

Þessar tölur gefa ekki rétta mynd því eins og með atvinnuleysistryggingar þá er tölfræðin fölsuð. Þessi frétt minnir raunar á aðra frá síðustu viku byggða á hugleiðingum Stefáns Ólafssonar prófessors á BSRB þingi.Sá hafði fundið út að stuðningur sveitarfélaganna við aðra en starfsmenn borgarinnar hefði minnkað. Hann hlýtur að hafa undanskilið framkvæmdastjórana hjá Borginni.

Sannleikurinn er sá að örugglega miklu fleiri hafa sótt um aðstoð en verið synjað. Þannig er fólki sem býr í foreldrahúsum synjað um fjárstuðning. Sá sem á skráða á sig tvo bíla er synjað um fjárhagsaðstoð og þannig koll af kolli. Reglur sveitarfélaganna eru í flestum tilvikum brot á lögum um framfærsluskyldu sveitarfélaganna en engin er í aðstöðu til að gera neitt því þau eru algjörlega eftirlitslaus í lögbrotum sínum.


mbl.is Um 6000 heimili fengu fjárhagsaðstoð í fyrra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spyrjum að leikslokum.

Við skulum bíða með að fagna réttarbót þessari sem boðuð er og sjá frumvarpið koma fram. Alltof oft hefur ríkisstjórn Gosa og Skruddu sett saman frumvörp sem orðið hafa að lögum sem engin fer eftir eða eru aðeins ætluð þeim sem fæddir eru á hlaupársdag þau ár sem ekki eru hlaupár.. Gilda fyrir fáa eða enga en þannig er t.d. um Lög um umboðsmann skuldara og lög um frestun á skattskuldum sjálfstæðra atvinnurekenda.

Efast ekki um að Ögmundur meinar vel en það eru mörg ljón á veginum.


mbl.is Frumvarpið mannréttindabót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dauður endurskoðandi eða verktaki ?

Hvernig ætli okurlánabókin sé hjá þessum nirflum í Hraðpeningum ? Fyrirtækið bregður fyrir sig vörn fúskarans nema nú er það ekki bókari eða endurskoðandi sem dó frá miðju verki heldur verktaki. Af hverju er þessi starfsemi ekki bönnuð ? eða af hverju er Hells Angels gert svona erfitt fyrir að koma sér upp svona starfsemi hér ?
mbl.is Persónuleg gögn aðgengileg á netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Laukrétt.

Sigurður mælir alveg rétt þegar hann segir að stjórnarskráin sé ágæt því það er hún. Hún er bara sett fyrir þjóð sem fer ekki að lögum. Fína fólkið fer fremst í því að fara ekki eftir lögunum. Þess vegna varð nú hrunið.

Verð þó að segja að ég vil gjarnan sjá ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur og að tiltekin fjöldi íslendinga geti farið fram á þjóðaratkvæðagreiðslur. Þá má skerpa á mannréttindakafla hennar.


mbl.is Líst ekkert á stjórnlagaþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætti að vera refsivert.

Sveitarfélögin eru svona illa stödd af því dólgarnir sem hafa ráðið þeim hafa skuldbundið þau í allra handa braskverkefni. Mikilvægasta verkefnið er að forða skattgreiðendum frá forystumönnum sveitarfélaganna. Það er best gert með því að leggja þau niður.
mbl.is Öll sveitarfélög á Suðurnesjum rekin með tapi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

B-mynd.

'' Sérfræðingahópur'' ríkisstjórnarinnar ? ætli það séu Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans og Hrafn Magnússon '' eigandi '' lífeyrissjóðanna og framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs ? Eftir öðru að dæma er það sennilegt.
mbl.is Funda áfram í dag um skuldavanda heimilanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áróðursstríð.

Þessum upplýsingum er gagngert stillt upp til að verjast því að skila þýfinu og auðvitað allt óendurskoðað og óstaðfest. Kemur þó í ljós að meira en helmingur ræður ekki við að greiða uppsetta peningaleigu. Þá kemur einnig í ljós að einstaklingar ráða ekki við að halda heimili. Tekjur einstaklings duga ekki til að halda heimili nema í undantekningatilvikum. Kemur líka í ljós að meira en helmingur er að greiða hálfa peningaleigu og er þess vegna talin standa í skilum.
mbl.is 88% lána einstaklinga í skilum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæfnisnefndin í eigu Samfylkingarinnar ?

Hæfnisnefndin er auðvitað öll í eigu Samfylkingarinnar. Það sést langar leiðir og því eigum við eftir að sjá hér veglega kunningjaráðningu. Það verður gaman að sjá í hvaða '' faglega'' búning nefndin á eftir að koma meðmælunum í. Þetta  verður brandararáðning fyrir þá sem fylgjast með þessu utan frá en fyrir 86 einstaklinga verður þetta ömurlegt. Ég spyr, þarf virkilega Ráðuneytisstjóra yfir ónýtri stjórnsýslu ? þarf nema símsvara eða talhólf ?
mbl.is Ragna sækir um embætti ráðuneytisstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband