Einn með djúptæka reynsu

Greinilegt að '' SUS'' arar hafa ákveðið að kjósa mann með '' djúpa'' reynslu ; lögfræðipróf og formennsku í hverfafélagi.
mbl.is Davíð Þorláksson kjörinn formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fasistastjórnin á réttri leið ?

Flokksráðsfundur VG á meirihlutann í VG og sér um uppklöppun fyrir þá stand up menn Jón og Steingrím og þá eiginhagsmunaseggi aðra sem erindast hér fyrir AGS og kröfuhafa. Það er í sjálfu sér rétt að mikill árángur hefur náðst í skattamálum en í átt til fasisma. Nú greiða landsmenn um 70% tekna sinna í skatt en greiða svo fyrir alla opinbera þjónustu fullt verð. Þeir greiða útvarpsréttargjald en fá auglýsinga sjónvarp og útvarp. Þeir greiða raunverð fyrir læknis og sjúkrahússkomur og flestir greiða ''sannleiksverð'' fyrir tannlæknisþjónustu. Skólaskylda er að vísu greidd með sköttum en helgast sennilega af því að ekki hefur tekist að afnema hana. Því má segja að  VG hafi náð að bæta vel í þá skatta'' stefnu'' sem Davíð Oddsson og Hannes Hólmsteinn byrjuðu að framkvæma. Nú er hún enn grimmari við fátækt fólk og kallast ekki frjálshyggja heldur stefna VG. Svona skattastefna ber feigðina með sér því á endanum hverfur samfélagið og almenningur hættir að vilja vera með og borga skatta nema auðvitað flokkspótindátarnir og opinberir starfsmenn sem geta ekki annað.

Svo skrítið sem það er þá eru grikkir, ítalir, írar og portúgalir nú farnir að vinna eftir þessari skatta''stefnu'' VG og hafa líka náð svipuðum árangri og jafnvel betri en þar hafa VG liðar líka hækkað skatta en rukka fullu verði fyrir alla almanna þjónustu en loka svo líka skólum og svipta einnig gullkálfa flokksins fyrirtíðs eftirlaunum og ráðgjafalaunum frá ríkinu. Það hefur ekki verið gert hér, því miður.


mbl.is „Ótvíræður árangur“ í skattamálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðnýta á Orkuveituna

Auðvitað á að þjóðnýta OR því það er eina vitið. Það er ekki forsvaranlegt að almenningur sé látin beila út þá sem rændu OR að innan. Þar fór fremst í flokki borgarstjórn Reykjavíkur og þeir stjórnmálamenn sem '' úthlutuðu'' sér OR ásamt völdum vinum s.k. starfsmönnum. Þetta þýddi m.a. að stjórnendur voru ráðnir eftir ranghugmyndum þeirra sjálfra  um '' heimsyfirráð'' og kommisjón af túrbínukaupum. Kommisjón af rækjueldi og draumurinn um '' heimsyfirráð'' yfir gagnaflutningakerfi.

Þessir menn skófu OR að innan og gerðu m.a. með byggingu höfuðstöðva, túrbínukaupum fyrir ekkert, virkjanaflippi og fleirum.

OR er ekki flókið fyrirtæki í grunninn en hún dælir heitu vatni inn í hús á stór- höfuðborgarsvæðinu og hún selur rafmagn. Framleiðsla á rafmagni er nokkuð fyrirsjáanleg '' vísindi'' . Fyrirtækið er að nafninu til almannaveita og tilgangur þess á að vera að tryggja rafmagn og húshita á sem ódýrastan en umhverfisvænastan hátt til almennings og fyrirtækja á '' samlagssvæðinu''. Það þarf því skynsamlegt dreifikerfi ( að stærstum hluta fyrir hendi frá fornu fari ), skúr með 3 til 5 skrifstofuherbergjum og fólk til að loka og lesa af mælum. Tölvubókhald og samning við póstinn eða heimabanka. Hugsanlega einhverja garðyrkjudeild, annað þarf ekki.

Alþingi Íslendinga á auðvitað að þjóðnýta OR í þágu almannahagsmuni þ.e. dreifikerfið handa almenningi og smáfyrirtækum. Greitt yrði fyrir skv. mati fyrir dreifingarhlutann og virkjanaréttindin en annað yrði skilið eftir í höndum stjórnar OR og þá yrði sjálfgefið að fyrirtæki þeirra færi í þrot. 

Það er ekki forsvaranlegt að þeim sé leyft að ræna fyrirtækið en skilja skuldir eftir hjá almenningi í formi svimandi hárra hita og rafmagnsreikninga. Um leið halda '' þjófagengin'' áframhaldandi rétti til að ræna fyrirtækið.


mbl.is Hækkun orkureikningsins 26%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dulnefni Velferðarráðherra ?

Ætli Joe Pelligra sé dulnefni Velferðarráðherra í fasistastjórninni ?. Skrifin eru öll um hvað hér sé allt gott og frábært líka hæð okkar og útlit.Hljómar eins og þetta sé allt skrifað á skátafundi hjá Velferðarráðherra sinnar velferðar.
mbl.is Íslendingar sagðir hávaxnastir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er eitthvað starf ?

Er eitthvað starf í FRamsóknarflokknum ? Ekki sér maður neina fundi auglýsta nokkursstaðar og það eina sem maður verður var við eru úrsagnir og meiðyrðamál Gunnlaugs Sigmundssonar gegn Teiti Atlasyni.
mbl.is „Veikir ekki innra starfið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vel tengdur húseigandi.

Þessi samningur var auðvitað gerður til að styðja húseigandann þáverandi sem var fyrirtæki í eigu Péturs Kjartanssonar, lögfræðings og mikils '' sjálfstæðismanns''. Sennilega hefur Jón Kristjánsson gert einhvern skiptidíl við ráðherra úr Sjálfstæðisflokknum. Fjórflokkakerfið virkar þannig að ráðherra sjálfstæðis er stundum fengin til að leppa greiða við framsóknar og samfylkingar og saman fá velviljaðir að standa á beit í ríkissjóði. Alltaf er hugsað fyrir velferð góðkunningja flokkakerfisins.

  Húsnæðið á Austurströnd er 700 fermetrar og tvær milljónir á mánuði í húsaleigu gerir um 2.900 kr. á fermetra. Við flutninginn nefndi þáverandi Landlæknir að helst þyrfti þó embættið að flytja á 5 ára fresti en samt gerði hann 25 ára samning ( sennilega einhver staðið með byssuígildi fyrir aftan hann ). Sennilegt er að leigan hafi upphaflega verið um 1.300. þúsund í janúar 2003 eða ígildi eins Kia bíls á mánuði. Fasteignamat hússins var 54 milljónir árið 2003 en er núna 85 milljónir. Markaðsverð húshlutans hefur sennilega verið um 70 milljónir þegar Landlæknisembættið flytur í janúar 2003 og eðlilegt leiguverð fyrir svona húsnæði þá var um 1000 krónur á fermetra en ríkið '' bauðst'' til að greiða nærri 100% meira í leigu en algengt var. Samt var húsnæðið úr alfaraleið en þó átti almenningur að eiga viðskipti við Landlæknisembættið.

Ef ríkið hefði keypt svona skrifstofuhúsnæði fyrir 70 milljónir árið 2003 og greitt það með láni til 25 ára á 5% vöxtum þá hefðu afborganir og vextir á mánuði verið um 409 þúsund á mánuði. Með öðrum orðum þá hefði ríkissjóður sparað sér um 900 þúsund krónur á mánuði eða tæpar 11 milljónir á ári við að kaupa skrifstofuhúsnæði. Eitthvað hefði kostað að viðhalda húsinu og sennilega um 1.400 þúsund á ári en allt að einu hefði verið miklu betur farið með fjármuni ríkisins við að kaupa húsnæði undir starfsemi Landlæknisembættisins heldur en að leigja plássið.

Bara þarna hefur spillingin kostað skattgreiðendur um 180 milljónir á 8 árum en auðvitað er þarna verið að ræna ríkissjóð innanfrá. Auðvitað á það að vera refsiverð háttsemi að gera svona samninga og það ætti að gilda bæði um húseigandann og ríkisstarfsmanninn sem '' tók'' að sér framkvæmdina en örugglega hefur tvíflokkurinn stýrt þessu á bak við tjöldin.

Spurningin núna er hverjum er Landlæknisembættið látið hjálpa með húsaleigusamningnum um skrifstofuna í Heilsuverndarstöðinni ? Er það sjálfstæðis eða samfylkingar ? eða framsóknar ?


mbl.is Vandamálið óuppsegjanlegur samningur til 25 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Milliliðirnir kvarta

Sveitarstjóradólgur númer eitt grenjar hér í fréttinni og vill standa vörð um sveitarstjóra og borgarstjórastigið í landinu. Stig sem ranglega er kallað sveitarstjórnarstig en er í raun stig um óþarfa milliliði sem standa á beit í almannasjóðum borgaranna. Dólgarnir hafa t.d. raðað í kringum sig batteríi sem kallast '' Samband íslenskra sveitarfélaga'' sem er svona vinnuveitendasamband bæjarstjóra og með 25 starfsmenn og launaðan '' formann''. Ísland er smáríki á stærð við Mónakó og það tekur ekki langan tíma að keyra hringinn í kringum landið og allar stærðir eru hér litlar og því er þetta millistig algjörlega óþarft. Dólgarnir eru svona náungar sem éta sjálfir almannasjóðina undir því yfirskyni að þeir séu með því að færa þjónustuna '' nær'' borgurunum. Það er auðvitað fjarri öllum sanni. Það eina sem þessir milliliðir gera er að taka skattfé frá ríkinu-klípa duglega af því- og skila svo mismuninum í skólastarfið sem er allstaðar svellt. Þá hafa þeir örlítið niðurgreitt starfsemi leikskóla með útsvarstekjum og tekjum af fasteignagjöldum en má segja að það sé meira gert til að skapa tilgang fyrir sveitarstjóradólgana og vegna kröfu frá skattgreiðendum í barneignum.  Leikskólar eru ekki bara reknir af sveitarstjóradólgum í '' einkaframkvæmd'' heldur líka af einstaklingum og hópum. Svo getur vel orðið áfram en þá er handhægast að gera það með beinu framlagi en ekki í gegnum milliliði eins og nú tíðkast. Milliliði eins og Halldór sem taka '' feitt'' . Leggjum því niður sveitarstjórastigið og bætum þannig gæði leikskólanna og kaup leikskólakennara.
mbl.is Tekjuaukning eða niðurskurður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spillingin góða.

Hvergi er spillingin meiri en á hinu óþarfa stjórnsýslustigi sem er kallað sveitarstjórastig. Þið vitið, þessir stjórnendur sem eru óþarfir milliliðir og eyða skattfénu í eitthvað sem er í raun algjörlega bannað. Þannig er engin heimild fyrir því að eyða skattfénu svona eins og Pótintátar Akranesskaupstaðar hafa gert með því að ráða pólitískan vildarvin til að '' skrifa'' sögu bæjarins
fyrir tæpar 50 milljónir í meira en áratug. Vil benda á málefnaleg skrif Hörpu Hreinsdóttur um þetta '' verk'' á bloggi hennar. Verkið er auðvitað móðgun við alla söguritun í landinu segir Harpa og færir góð rök fyrir máli sínu.
mbl.is Krefja Pál Baldvin um afsökunarbeiðni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fækkum milliliðum.

Sveitarfélögin er kjánalegasta fyrirbærið á Íslandi en þau eru þessi óþarfa milliliður þar sem duglega hefur verið yfirmannavætt og búin hafa verið til breið lög af yfirmönnum í kringum örfáa íbúa. Yfirmennirnir éta skatttekjurnar og framlögin frá ríki til grunnskólanna undir því yfirskyni að við þetta át færist stjórnsýslan nær '' íbúunum''. Það er auðvitað fjarri öllum sanni. Nú stendur yfirmannavæðingin í vegi fyrir að íbúarnir hafi leikskóla í lagi. Rétt eins og þeir éta upp framlagið frá ríkinu til grunnskólanna.

Mikilvægasta verkefnið er að losna við sveitarstjórastigið í landinu þannig að íbúarnir fái aftur aðgang að þjónustu í bænum sínum. Um leið gætu skattar lækkað um helming en þjónustan örugglega batnað um helming.


mbl.is Aukin harka í kjaradeilu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugmyndin um ofurmennið í Seðlabankanum.

Textinn hjá Peningastefnunefndinni er frábær og sýnir að ekki lifir hún í raunheimum. Það er auðvitað yfirmáta kjánalegt að Ísland með sinn ónýta Matador gjaldmiðil skuli vera með Seðlabanka og bara það sýnir auðvitað í hvaða búðarleik þjóðfélagið er. Ef það hefði verið eitthvað vit í Má þá hefði hann látið það vera sitt fyrsta verk að mælast til þess við Forsætis að bankinn yrði lagður niður.
mbl.is Seðlabankinn hækkar vexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 1272

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband