Auðvelt að redda þessu, gerum þá alla að viðskiptaráðherrum

Ekkert mál að bjarga þessu, nú við gerum þá alla að viðskiptaráðherrum.Í viðskiptaráðuneytinu er gott

og huggulegt að vera.Þá er verið að stofna þar handrukkaradeild, já og reyndar líka í forsætisráðuneytinu.Jóhanna sagði það óbeint í viðtali við RÚV. 


mbl.is Öllum starfsmönnum sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Einarsson

Spurning hvort það sé búið að selja þetta ...

Með hesthús og heitan pott í stofunni

mynd
MYND/WWW.INHOUSE.IS(ÁSMUNDUR)

Dreymi þig um að geta horft á kvöldfréttirnar í heitapottinum við róandi snark í arineldi þá er tækifæri til þess núna. Eigirðu 180 milljónir á lausu eða sért í góðu sambandi við bankann þinn geturðu nú fjárfest í 500 fermetra höll Kópavoginum.

Verktakinn Þorgeir Björgvinsson og Klara Guðrún Hafsteinsdóttir hundaræktandi settu nýlega á sölu stórglæsilegt einbýlishús sitt við Asparhvarf í Kópavogi.

Húsið er 501 fermetri og skiptist í 410 fermetra íbúð, 31 fermetra bílskúr og sextíu fermetra hesthús fyrir átta hesta.

Sérhannaðar innréttingar eru í allri íbúðinni og eru eldhúinnréttingar og sólbekkir búnir svörtum granítplötum. Afar veglegt kolsvart borðstofuborð úr graníti prýðir borðkrókinn, og fylgir það húsinu, enda ekkert grín að flytja mörg hundruð kílóa granítplötur langar vegalengdir.

Afar fullkomið gólfhitakerfi er í öllu húsinu. Þá er raflkerfi hússins mjög vandað og mikið af innbyggðri lýsingu frá Lumex. Náttúruflísar eru á öllum gólfum hússins nema í hesthúsi. Ekki væsir um ferfætlingana heldur, en gólf hesthússins er lagt steindúk og básarnir steyptir með grindum úr ryðfríu stáli.

Og þar sem líklega er ekki gaman að þrífa fimm hundruð fermetra hús, en það er í það minnsta gert öllu bærilegra með innbyggðum ryksugubörkum í veggjum allra herbergja.

Viðar Marínósson, fasteignasali hjá Remax, segir að húsið sé eitt það glæsilegasta á höfuðborgarsvæðinu og að verðmiðinn sé í raun ekki svo fjarri byggingakostnaði. Þannig hafi bara hljóð og sjónvarpskerfið kostað um tíu milljónir króna. Það er frá Bang og Olufsen, afar fullkomið, og er hægt að stýra því með fjarstýringu frá flestum herbergjum hússins.

Sævar Einarsson, 4.5.2009 kl. 09:47

2 identicon

Huh...Heimir og Þorgeir hafa verið á hausnum síðan 2006, spyrjið bara lánadrottnanna!

Erla (IP-tala skráð) 4.5.2009 kl. 11:55

3 Smámynd: Einar Guðjónsson

Er að vísu ekki viss um að það sé svona huggulegt í viðskiptaráðuneytinu.Held að anddyrið sé talsvert minna.Sé líka að Þorgeir hefur átt borð fyrir báru á Séð og heyrt tímanum. Sýnist líka að eitthvað af þessu megi flytja úr landi.

Einar Guðjónsson, 4.5.2009 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 982

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband