1.9.2009 | 22:05
Eitthvað málum blandið
Ef marka má Kristján fyrrverandi skipstjóra hjá Eimskip. Þennan sem tapaði meiðyrðamálinu sem Björgólfur sótti gegn honum korteri fyrir hrun. Þá er hér um að ræða félag sem hét upphaflega Atlanta og var stofnað 1988. Það er víst það félag sem fer í nauðasamninga en hið gamla Eimskipafélag hefur víst setið í skúffu frá dögum Harðar Sigurgestssonar. Reksturinn var fluttur í þetta félag Atlanta og nafni þess breytt og breytt, sama gildir því um hið upphaflega Eimskipafélag. Gamla kennitala þess er þó óspjölluð.
Nafni Eimskips verði breytt í A1988 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sælir.
Spurning hvort má kalla það óspjallað þar sem það var lítils virði þegar Björgólfur keypti það.
Björgólfur lagði niður óskabarn þjóðarinnar með formlegum hætti á sínum tíma, þ.e.a.s. það félag sem var stofnað 1914. Eigur þess runnu síðan ínn í annað eins og finna má í fyritækjaskránni hjá RSK. Þannig er þetta ekki óskabarn þjóðarinnar svonefnt. Þetta er hann sagður hafa gert í hefndarskyni vegna Hafskipamálsins hans þar sem hann var sakfelldur fyrir ýmis lögbrot, en kenndi Eimskip um síðar.
Avion Group hf, Flugfélagið Atlanta hf, Flugfélagið Atlanta ehf
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 2.9.2009 kl. 15:10
Takk fyrir þessar upplýsingar.
Einar Guðjónsson, 2.9.2009 kl. 19:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.