23.7.2009 | 14:26
Notum tækifærið og leggjum þau niður
Notum tækifærið og leggjum niður sveitarfélögin í þeirri ómynd sem þau hafa vaxið í. Það er gjarnan á
sveitarstjórnarstiginu sem spillingin lærist og þetta algjöra virðingarleysi gagnvart lýðræðinu og þrískiptingu ríkisvaldsins. Þykk lög af millistjórnendum sem gera lítið annað en að taka við greiðslum frá
ríkinu og koma þeim áfram til þeirra sem vinna verkin. Það gildir t.d. um skólana en þeir voru lengi reknir af ríkinu og bárust þá greiðslur frá ríkinu til fræðsluskrifstofa og þaðan til skólana. Svo tóku sveitarfélögin við þ.e. einhverjir 15 sveitarstjórnarmenn og eru nú milliliðir um greiðslurnar til skólana
sem berast frá ríkinu. Við þetta hafa millistjórnendur orðið til hjá sveitarfélögum með milljón plús á mánuði en um leið minnka framlögin sem því nemur til skólana. Sveitarfélögin eru bara dýrt milliliða og okurkerfi og algjör óþarfi í okkar nútímasamfélagi. Ef einhvers staðar má skera niður þá er það þar.Því
aðalverkefnin hafa verið lóðabrask og vegabrask.Með hörmulegum árangri fyrir fjárhag þeirra.
Sveitarfélög á leið í gjörgæslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
En hvað eigum við að gera við fólkið sem býr í þessum sveitarfélögum .. !
Snorri Gylfason (IP-tala skráð) 23.7.2009 kl. 18:41
Það getur búið áfram í Kópavogi. Skipulagið verður bara unnið hjá Skipulagi ríkisins.
Skólarnir reknir áfram nema tjékkinn kemur beint og milliliðalaust til starfsmanna frá ríkinu en millilendir ekki hjá Gunnari.Verður því ekki að engu á leiðinni. etc. Félagsþjónustan verður að tryggingasamlagi borgaranna. Útsvarið lækkar niður í 4% og fasteignaskattar verða föst upphæð um 14.000. og renna til vegagerðarinnar sem hirðir um göturnar eða Kópavogsbúar geta stofnað götufélag eða félög. Við þetta eykst kaupmáttur heimilanna MIKIÐ og treysti því þeim sjálfum til að láta gott af sér leiða til Leikfélagsins.
Einar Guðjónsson, 23.7.2009 kl. 20:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.