12.7.2009 | 16:48
Rétt og raunsæi
Unga fólkið lætur sem betur fer ekki bjóða sér kaup eins og í norður Afríku en verðlag eins og í Tokyó.
Það eru nú þegar 55.000. íslendingar í útlöndum ( áramótin 2007 / 2008 ) og ég vil meina að þetta hafi alltaf verið flökkusaga um hvað hér var gott að vera og að einhverju leyti tölfræðisvindl.Rétt eins og ályktanir Transparency um spillinguna hér. Þá eru borgararéttindi hér lítil og höfuðáhersla lögð á
velferð banka og fyrirtækja.Miklir skattar sem lítið fæst fyrir, dýr og fjölmenn en ónýt stjórnsýsla.Dýrt sveitarstjórabull en algjörlega óþarft.Bara svo fátt eitt sé talið. Hvers vegna skyldi unga fólkið eyða 10 árum aukalega í að vinna fyrir heimili í samanburði við Dani og Svía sem fá 10 vinnuár í forgjöf.Eru ekki
að vinna fyrir heimili ( húsnæði) sínu í 20 ár. Ekki 6 vinnuár að vinna fyrir tryggingaiðgjöldum af bílnum. Margir íslendingar eiga eftir að fara og þeir koma aldrei aftur því landið hefur ekki lengi lengi staðist nokkurn samanburð við nágrannalöndin þegar kemur að lífskjörum og lífsgæðum. Unga kynslóðin sem
kynnst hefur öðrum þjóðfélögum hefur lært það sjálf að miklu betra er að búa í Svíþjóð en heimsækja ættingja hér.Það er líka miklu einfaldara en að búa á Egilsstöðum og fljúga eða keyra til Reykjavíkur.
Halldór Ásgrímsson og flestir fyrrverandi stjórnmálamenn hafa líka áttað sig á þessu og koma sér í burtu um leið og tækifæri gefst ,eftir að hafa barið á borgurunum hér , sem ráðherrar eða þingmenn.
Framtíðin utan Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.