25.6.2009 | 20:52
Fólkið á gólfinu ber ekki ábyrgð á hruninu.
Það er alveg rétt sem Friðbert segir. Fólkið á gólfinu í bönkunum eru sömu andlit og sama fólk og var í
bönkunum fyrir einkavæðingu, eftir einkavæðingu og eftir hrun. Margir þeirra bankamanna sem viðskiptavinir hitta í útibúum og á gólfinu eru úrræðalausir afþví eigandinn hefur enga skoðun á rekstri
bankanna og engin ákvörðun hefur verið tekin um hvernig bregðast eigi við tapi heimila og fyrirtækja
í kjölfar hrunsins.Hvernig taka eigi á lánum sem hafa ´´þrefaldast´´ .Einhverjar hugmyndir hafa bankarnir sjálfir sett fram m.a. Íslandsbanki sem virðist vera hvað málefnalegastur í afstöðu sinni með
s.k. greiðslujöfnun.Það virðist vera það eina sem bankinn getur gert því ´´eigandinn´´Steingrímur J
Sigfússon vill ekkert gera og vísar alltaf frá sér ábyrgð á bönkunum.Fóstursonurinn Gylfi er líka álíka ábyrgðarlaus og bankarnir virðast ekki koma honum við. Viðskiptavinir bankanna eiga auðvitað að skamma bankastjóraparið Jóhönnu og Steingrím og fóstursoninn Gylfa Magnússon. Já og kannski
Gylfa A Sí. sem styður þau í okurlánunum.
Bankamenn fá áfallahjálp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.