24.6.2009 | 13:01
Baráttan um Ísland
Væntanlegt greiðsluverkfall snýst um sanngirni og að ríkisvaldið og Handrukkarastjórnin skili þýfinu.Verkfallsmenn ætla að reyna að gera Ísland byggilegt fyrir venjulegt fólk en nú fer meginhluti tekna heimilanna í greiðslur til Mafíunnar sem ræður bönkunum. Fyrirtæki eru ekki heldur rekstrarhæf því kostnaðurinn hér á landi er svo miklu hærri en hjá fyrirtækjum í öðrum löndum.Svo hefur verið um árabil.Ferðaþjónustan er ekki samkeppnisfær, verslun er ekki samkeppnisfær.Lífskjör hér eru einfaldlega ekki boðleg venjulegu fólki.Annað hvort er að stuðla að því að Ísland haldist í byggð með
GREIÐSLUVERKFALLI eða fara. Er viss um að þetta verður vel skipulagt verkfall og verður að vera það.
Þá verður líka að standa líkamlegan vörð um heimilin láti Handrukkarinn frá Langanesi sverfa til stáls og sigi lögreglunni á heimili fátæks fólks.
Hagsmunasamtök heimilanna styðja greiðsluverkfall | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 1136
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Enn á ný er verið að hamast á þeim sem eru að bjarga því sem hugsanlega er hægt að bjarga eftir hamfarir frjálshyggjunnar. Guð hjálpi þessu fólki ef þessi stjórn hrekkst frá og auðvaldið í boði íhalds og framsóknar raðar sér á ríkisjötuna aftur þá verður ekki talað um handrukkara þá verður flatur niðurskurður í boði Guðlaugs Þórs og hands legáta og vildarvinir fá okkar góða heilbrigðiskerfi til að græða á.
Bergljót Aðalsteinsdóttir, 24.6.2009 kl. 14:27
Þessi ríkisstjórn er bara á sömu leið og stjórn Haardemans.Þetta er auðvaldsstjórn.
Einar Guðjónsson, 24.6.2009 kl. 19:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.