Verður maturinn ódýrari á Þórshöfn ?

Landstjóri Ags og Bankastjórar VG og Samfylkingar Jóhanna og Steingrímur standa áfram að öflugum aðgerðum til að drepa efnahagslífið enn hraðar og meira og auka skuldir fyrirtækja og heimila.Nú ríður á að bjarga bönkum og lífeyrissjóðum með betri afkomu.Að vísu verður það aðeins í skamman tíma. En svo neyðist fólk til að fara, ungir læknar eru að fara nema varaformaður Samfylkingarinnar.

Þessar skatttekjur skila sér ekki nema öfugt. Barirnir og innlendir bruggarar fara nú á hausinn fljótlega eftir að hafa greitt álögurnar.Þá fara eigendur og starfsfólk á atvinnuleysiskaup frá ríkissjóði. Þá fara fjölskyldurnar að henda bílunum til að losna við bifreiðagjöldin og ekki hlaupa þær til og kaupa sér dísilbíla. Þetta er aðeins jákvæð aðgerð fyrir þá sem keyra vörur í búðir út um landið þessar 4 sem

enn eru eftir á landsbyggðinni þ.e. á Siglufirði, Þórshöfn og Akureyri.Önnur verslun á landsbyggðinni  er löngu horfin. Já maturinn á Þórshöfn verður hugsanlega eitthvað ódýrari en aðgerðirnar eru svona búðarleikur Jóhönnu og Steingríms. Eða tilraun til að gefa hagfræðilögmálum á kjaftinn. Því skal ekki neitað að nafnið á skatta og drepaðgerðunum er  sett á markað undir snjöllu nafni: aðhaldsaðgerðir.

 

 

 


mbl.is Mælt fyrir hækkun gjalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband