25.4.2009 | 20:49
Dýrustu strætóferðir íslandssögunnar.
Það verða sagðar sögur af Héðinsfjarðargöngunum út um víða veröld.Hvernig sveitarstjórnardurgur á
Siglufirði var kosinn á Alþingi til að gæta hagsmuna Héðinsfjarðargangna. Hvernig með kaup kaups aðferðinni þessi fáranlega framkvæmd varð að veruleika og hvað hvert mannsbarn á íslandi borgaði fyrir bullið. Stóra spurningin er hvað kostaði þetta á mannsbarn í Fjalla byggð 3. millur, fimm millur, 9
millur ?? Gott dæmi um hvað spillingin kostar þjóðríkið.
Strætóferðir um Héðinsfjarðargöng á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég skal láta þig vita það að íbúar í Fjallabyggð eru margfallt búnir að borga þessi göng sjálfir. Lestu söguna og sjáðu tekjurnar sem þau tvö sveitarfélög sem núna heita Fjallabyggð, hafa lagt til þjóðarbúsins.
Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir, 25.4.2009 kl. 20:55
Svona skrifa bara fávitar!
Ólafur Viggósson (IP-tala skráð) 25.4.2009 kl. 21:03
Guði gefi oss fleiri slíka fávita.Sting upp á því að við förum bara alla leið ef rétt er
að þið hafið lagt þessi göng margfalt til þjóðarbúsins þá eigið þið bara að stinga af.
Eyða ykkar tekjum á Siglufirði og sjá um ykkur sjálf.Hirða bara alla ykkar skatta og sjá um ykkur sjálf. Það hefði sparað Íslandi mikið. Sannleikurinn er sá að þið hafið fengið mikla meðgjöf í tæp 50 ár og göngin kosta miklu meira en samanlagðar skattekjur fjallabúa í 800 ár. Að viðbættum tekjum af atvinnustarfsemi en Siglufjörður fékk örugglega sitt í löndunartekjur af aðkomubátum sem lönduðu síld þar. Hver segir að þið séuð eina fólkið sem á að fá eitthvað fyrir skattekjurnar ??
Einar Guðjónsson, 25.4.2009 kl. 21:13
Jæja þið segið það. Hvað vinnið þið? Og hvar búið þið? Skrítið hvað sumir litlir strákar geta ibbað gogg ;)
" Að viðbættum tekjum af atvinnustarfsemi en Siglufjörður fékk örugglega sitt í löndunartekjur af aðkomubátum sem lönduðu síld þar. Hver segir að þið séuð eina fólkið sem á að fá eitthvað fyrir skattekjurnar ??" Hehehehe það sem fólk lætur út úr sér. Þið eruð bara pínu abbó og velkomnir til okkar fallegu Fjallabyggðar
Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir, 25.4.2009 kl. 21:24
Það er alveg rétt að Siglufjarðargöng eru dýrt mannvirki – en ef við ætlum að halda byggð í landinu verður að ganga svo frá málum að samgöngur sé greiðar á milli staða. Það er auðvelt að reikna það út að hagkvæmara sé að leggja Sundabraut eða tvöfalda Suðurlandsveg. Mælistikur hagkvæmninnar eiga bara ekki alltaf við. Samsetning byggðar er flóknari en svo að það sé hægt að mæla allt með tilliti til þess hvort hlutirnir borgi sig. Ég held líka að græðgisvæðingin, sem lagði landið nánast í rúst, hafi sýnt það og sannað að við verðum að hafa önnur viðmið en gróðavonina eina og sér. /ask
ask (IP-tala skráð) 25.4.2009 kl. 21:40
Til hamingju Siglfirðingar og Ólafsfirðingar og allir þeir sem nota munu göngin í framtíðinni. Það hillir undir mikla samgöngubót og slíkar bætur þurfa svo sannarlega að verða víðar á landinu, ekki síst á Vestfjörðum. Ég, sem Ísfirðingur, man afskaplega vel þann fögnuð og létti og mikla aukningu á samskiptum fólks á norðanverðum Vestfjörðum haustið 1996, þegar Vestfjarðagöngin (undir Breiðadals og Botnsheiðar) voru opnuð. Ég mun samfagna ykkur við formlega opnun.
Eggert Stefánsson (IP-tala skráð) 25.4.2009 kl. 23:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.