Brandarakall.

Árni Páll er titlaður félagsmálaráðherra í fasistastjórninni. Eitt af hans fyrstu verkum var að tryggja Yngva Erni framfærslu með ráðgjafatékkum úr Ríkissjóði. Verkefni númer tvö var að koma á fót Bótalöggu sem átti sérstaklega að sjá um að hafa rétt af atvinnulausum og þeim er minna mega sín.

Nú vill hann sjá Yngva Örn sem beitarkind í Íbúðarlánasjóði. Stjórnin hefur  hinsvegar þráast við og telur sennilega að maður sem ekki kunni að reka banka nema á hausinn geti varla aukið á trúverðugleika Íbúðarlánasjóðs. Jafnvel þó hann kunni á exeltöflureikni. Bregður hann nú á það ráð að skipa '' réttlætisnefnd'' til að ráða Yngva Örn enda er það í samræmi við auglýsinguna en hún var sérsniðin til að hægt væri  Yngva Örn.

Skipun nefndarinnar bendir til þess að sami brandari eigi að ráða þarna og þegar ráðin var þiggjandi að  Seðlabankatékkanum. Sýnir þetta að gamla fúla spillta Ísland er óðum að ná vopnum sínum þó að það noti nú Capacent og svo viðskiptaráðherra sína vini sem kalla sig Intelecta ( til að undirstrika að ekkert sé í heilabúi þeirra ? ) til að gefa kunningjaráðningunum faglegt yfirbragð.


mbl.is Valnefnd um Íbúðalánasjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyr heyr

Birgitta Thorleifsdottir (IP-tala skráð) 26.8.2010 kl. 19:56

2 Smámynd: corvus corax

Þetta er enn ein birtingarmynd spillingarinnar og einkavinavæðingarinnar sem sjálfstæðisflokkurinn var hvað frægastur fyrir með Björn Bjarnason fyrrverandi spillingarráðherra og Árna dýralækni Mathiesen í fararbroddi. Samfylkingin ætlar greinilega að halda spillingarfánanum sem hæst á lofti.

corvus corax, 27.8.2010 kl. 09:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 899

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband