13.5.2010 | 11:48
Kirkjumálaráðuneytið
Gylfi fór með postillubréfið sem Jónas Jónsson flutti í hittifyrra og Árni Matt var fengin til að flytja árið 2007. Átti flutningurinn sér stað á þessu '' kirkjuþingi'' bankamanna. Kemur fram í handritinu sem Gylfi fékk til að lesa að bankahrunið væri allt saman öðrum að kenna. Þannig hafi fall Lehmans bræðra verið ísjakinn sem '' bankarnir'' lentu á fyrir tilstilli skipstjórans. Kemur glöggt fram í textanum að símsvarinn í Viðskiptaráðuneytinu hefur greinilega ekki lesið skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Þar er allt önnur greining. Skilanefnd Glitnis og sérstakur saksóknari sjá allt aðra mynd.
Fyrst að viðskiptaráðherrann umgengst fjármálafyrirtækin eins og trúfélög þá finnst mér eðlilegast að fjármálafyrirtæki og starfsemi þeirra verði færð undir Kirkjumálaráðuneytið. Þar verði eftirlitið með starfsemi bankanna og annarra trúfélaga.
Gylfi treystir íslenskum bankamönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.