5.5.2010 | 11:02
Áfram bestir í spillingu
Ísland er áfram í fararbroddi þegar kemur að spillingu og það er útaf fyrir sig frábær árángur hjá ekki stærri þjóð. Þetta er í rauninni eina sviðið þar sem við höfum afgerandi forskot. Þessi árangur sýnir um leið að eingu skiptir hverjir stýra landinu.
Eftirfylgni Íslands óviðunandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kemur mér ekkert á óvart. Skil ekki hvað stjórnvöld draga lappirnar. Er farið að kyrrsetja eigur þeirra sem skrifuðu allt á maka sína rétt eftir hrun? Ég óska engum þess að missa allt sitt, en ef það eru einhverjir sem eiga það skilið umfram aðra. þá eru það þeir sem gröðkuðu hvað mestu til sín í „góðærinu“ sem sumir urðu aldrei varir við.
Á ekki að fara að skoða sparistjóðina? Þar eru margir þekktir aðilar sem seldu stofnfé sitt áður en allt hrundi.
FJÁRMÁLARÁÐHERRA! Hvernig væri að endurráða rannsóknarnefndina í að skoða sparisjóðina? Ekki á næsta ári heldur NÚNA EÐA STRAX!
Mér hefur dottið í hug að veðrið sé orðið svo gott að við ættum kannski að fara að tjalda niður á Austurvelli.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 5.5.2010 kl. 11:18
Fjármálaráðherrann er alveg getu og áhrifalaus.
Einar Guðjónsson, 5.5.2010 kl. 11:22
Eftir að Transparency Organization birti lista árið 2006 yfir minnst spilltu lönd í heimi og höfðu sett Ísland nr. 2 á eftir Noregi, skrifaði kunningi minn þessum and-spillingasamtökum og benti þeim á að þeir höfðu algjörlega rangt fyrir sér, Ísland væri spilltasta land í Evrópu. Sem dæmi um þetta nefndi hann einkavinavæðinguna sem var í algleymingi. Á þessum tíma vissi hann ekkert um spillinguna í bankakerfinu.
Han benti samtökunum á, að það þýddi nú lítið að spyrja Geir Haarde: Er mikil spilling hér?, ríkisstjórnin þekkti ekki spillingu frá góðri stjórnsýslu, því að ríkisstjórnin sjálf var gjörspillt. Transparency þyrfti að setja af stað sjálfstæða rannsókn. Þá mundi eflaust koma í ljós, að Ísland ætti að vera í flokki með löndum eins og Zimbabwe og Byelarus.
Nú, árið eftir var Ísland dottið niður um allmörg sæti en hefur því miður ekki hrapan neðar. Það þýðir að Transparency Organization eru ekki að standa sig. Ég get ekki skiið að þeir sjá ekki íslenzku spillinguna sem allir eru að drukkna í. Sjá t.d.
http://media.transparency.org/imaps/cpi2009/
Vendetta, 5.5.2010 kl. 11:56
Sem betur fer virðist GRECO hafa betri skilning á hlutunum. Betri skilning en Transparency og mikið betri skilning en Jóhanna, Steingrímur og Co.
Vendetta, 5.5.2010 kl. 12:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.