3.5.2010 | 20:17
Skapandi hagfræði
Már er klárlega skapandi hagfræðingur en hinn sérstaki saksóknari gegn mótmælendum á þingpöllum fékk einnig sporslu sem formaður stjórnar Seðlabankans. Í hlutverki sínu sem stjórnarformaður hefur hún hafið sókn í kjaramálum fyrir Má. Vill að kjaradómur verði hundsaður en um leið hefur komið á daginn að hún lofaði upp í ermina á sér þegar hún bauð Má kjör sem hún gat ekki staðið við.
Hagfræðin og stærðfræðin á svar við öllu og leiðin til hærra kaups fyrir Má er sennilega að semja um tölulega lækkun t.d. 900 þús en í öðru veldi. Þá lækkar Már í kaupi en fær samt 1800 þúsund á mánuði en verulega meira en Kjararáð ákvað.
Það verður þó að segjast um Má að hann kann mannasiði og stjórnsýslu en mér er sagt að hann hafi í dag svarað flestum póstum sem hann fékk frá almenningi er spurðist fyrir um launakjör. Eitthvað sem hann gæti örugglega kennt Talhólfinu í Viðskiptaráðuneytinu að gera.
Legg að lokum til að Einar Karl verði nú gerður að Seðlabankastjóra.Már myndi ekki þiggja launahækkunina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Veistu til þess að hann hafi svarað öðrum þótt hann hafi svarað öllum mínum?
Tinna Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 4.5.2010 kl. 19:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.