27.1.2010 | 22:24
Fákeppni tryggð í flutningum
Þá er gamla spillta Ísland óðum að tryggja sig í sessi aftur eftir að hafa skafið innan úr bönkunum og ríkissjóði. Allt í anda hins liðna tíma og nú er búið að tryggja fákeppni og okur áfram á flutningum til landsins þannig að almenningur verður nú látin blæða fyrir með hærra vöruverði. Sjálfsagt er sennilegt að Ólafur geti farið í hvildarinnlögn hjá Ríkinu án þess að hún trufli okur á flutningum til íslendinga.
Allt er þetta nú í boði sveitarfélaga og Ríkisstjórnarinnar.
Ólafur heldur Samskipum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Fáránleg vinnubrögð og stjórnin er vanhæf með öllu!
Sigurður Haraldsson, 27.1.2010 kl. 22:40
Er ekki sjálfsagt að styrkja hann líka til að hefja strandsiglingar - þær eru á stefnuskrá ríkisstjórnarinnar held ég og þurfa vænan styrk - einmitt eitthvað fyrir Ólaf sem ábyggilega tekur við fleiri gjöfum!
Ragnar
Ragnar Eiríksson (IP-tala skráð) 27.1.2010 kl. 23:29
Fragtin yrði ennþá dýrari en nú og hefur hún þó gert allar íslenskar vörur ósamkeppnishæfar nema fiskinn.
Einar Guðjónsson, 27.1.2010 kl. 23:50
Ég vil benda fólki á að Samskip og Landflutningar samskip fóru ekki a hausinn í kreppunni og skilja ekki eftir sig tugi miljarða gjaldþrot handa landsmönnum eins og Eimskip/flytjandi gerir, Svo núna þegar búið er að fella niður skuldir Eimskip þá fara þeir að undirbjóða samkeppnisaðilana og á endanum fara þeir aftur í gjaldþrot, (með undirboðum á ég við að þeir eru að flytja frakt um og undir kostnaði) sem er ekki gott til lengdar. Flytjandi var um daginn að kaupa nýja flutningabíla sem er ekki frásögufærandi nema hvað að bílakaupinn hefðu frekar hentað 2007, Þeir sem sagt keyptu bíla sem voru ekki af ódýru gerðinni, Þessi framkoma og aðgerðir Flytjanda benda til þess að þeim er nokk sama þó svo að þeir fari aftur í þrot, Svo að ég hvet fólk til að flytja frekar með Landflutningum.
Fólk kannski hugsar hvað með það að ég sendi með flytjanda ég fæ ódýran flutning, það segir ekki alla söguna því að þessi ódýri flutningur gæti orðið miklu dýrari ef þeir rétta þjóðinni tugi miljarða flutningsgjaldareiknin.
Benedikt Helgason (IP-tala skráð) 28.1.2010 kl. 00:06
Og svo getur hann farið að skipuleggja næsta stórafmæli, 2017 - nægur er peningurinn ! Maður fyllist ógleði.
Halla (IP-tala skráð) 28.1.2010 kl. 00:12
Það er bullandi okur á flutningum hér eins og öðru. þess vegna er allt þjóðfélagið á hausnum. Til viðbótar eru alltaf tveir skuggabílstjórar með bílstjóranum. Þ.e. einn starfsmaður frá sveitarfélaginu og annar frá ríkinu. Báðir eru þeir millistjórnendur þar. Semsagt flutningsverðið þarf að standa undir kaupi fjögurra starfsmanna ef þú telur bankastarfsmanninn með.
Einar Guðjónsson, 28.1.2010 kl. 00:15
"Arion banki segi að engar skuldir hafi verið afskrifaðar." HAHAHAHAHAHA váááááááááá hvað bankastjórafíflin halda að Íslendingar séu mikil fífl ... ehemm við erum fífl sorry ! ætlum við að nöldra um þetta netinu eða ætlum við að GERA EITTHVAÐ !!!!
Sævar Einarsson, 28.1.2010 kl. 02:38
Hvað getur almenningur gert nema það að gera byltingu... ekki ætlum við að láta þessa glæpamenn vaða yfir okkur á skítugum skónum aftur.
DoctorE (IP-tala skráð) 28.1.2010 kl. 07:54
Ég vorkenni börnunum hans Ólafs Ólafssonar að eiga skíthæl sem föður. Nema hann sé barnlaus, sem væri auðvitað betra, því afbermi eiga ekki að fá að eignast börn.
Jón Flón (IP-tala skráð) 28.1.2010 kl. 09:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.