19.1.2010 | 12:04
Flóknara að opna veitingahús
Það er greinilega miklu flóknara að opna veitingahús heldur en að byrja að sýsla með bótasjóði. Síðarnefnda félagið er ekki gjaldþrota segir í tilkynningunni enda stofnað til að taka yfir reksturinn.
Tryggingarfélögin eru flaggskip okurþjóðfélagsins íslenska og starfa í ríkis fákeppnisumhverfi fyrir
eigendur sína. Ríkisvaldinu er svo alveg sama um kúnnana enda hefur það sett lög sem smala fólki nauðugu í viðskipti við þau. Þá er innheimta trygginganna ríkisstyrkt með löggjöf. Þau eru íslenska afbrigðið í hnotskurn: samantekin ráð um verð, málamyndaeftirlit og örugg ríkisstyrkt innheimta ásamt
okri. Ríkisvaldið sýndi stuðning sinn í verki við þessa hugsjón sína með því að skipta um kennitölu og rúlla kúnnunum inn í nýtt félag en skilja skuldirnar eftir í gjaldþrota félagi.
Öll bréf Sjóvár í skilum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.5.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 978
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.