Færsluflokkur: Bloggar

Talhólf verði Viðskiptaráðherra

Legg til að ríkið leigi talhólf eða símsvara til að gegna embætti viðskiptaráðherra. Það er miklu ódýrara fyrir ríkissjóð en að vera með Gylfa Magnússon. Niðurstaðan er alveg sú sama fyrir íslendinga. Ef þarf að sýna Viðskiptaráðherra t.d. á Norðurlandaráðsþingi þá má ráða þjálfaðan leikara í hlutverkið í eina viku á verktakakjörum.
mbl.is Veitir ekki upplýsingar um veð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Niðurgreiddur rekstur

Útgáfu Fréttablaðsins hefur verið haldið úti með auglýsingum frá ´´ eigendum´´ þess og afskriftareikningi NBI og gamla Landsbankans. Því ber auðvitað fyrst og fremst að þakka viðskiptavinum Bónuss-Hagkaupa-10/11 og svo vaxtaokri Landsbankans á venjulegu fólki. Án þessa stuðnings kæmi Fréttablaðið ekki út.

Annars hefur Fréttablaðið verið ágætt undir ritstjórn Jóns þó að leiðarar hans hafi iðulega verið banal og barnalegir. 


mbl.is „Ég var rekinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eðlilegt.

Þessi niðurstaða er eðlileg enda má svo sem segja að  stofnun Bónusar hafi verið eðlileg á sínum tíma.

Alveg óháð því hver stofnaði búðina. Kannski má þakka  Sláturfélagi Suðurlands stofnun Bónusar en Jóhannesi var sagt upp þar m.a. af því SS ákvað að hætta verslunarrekstri. Lágvöruverðsverslanir hefðu stofnast hér fyrir tuttugu árum svo sem orðið hafði í Evrópu 20 árum áður. Það var í raun tilviljun að það voru þeir feðgar og kannski það eina sem réði því var sú staðreynd að þeir voru með matvöruverslanir á heilanum. Það er engin þörf á Jóhannesi Jónssyni sem eiganda að Bónus, við gætum alveg eins búið við Agnesi Bragadóttur sem 10% eiganda. 


mbl.is 80% vilja ekki Jóhannes í Bónus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir neðan allar hellur

Þessi stefnuskrá er fyrir neðan allar hellur og kemur í raun óorði á baráttuna gegn bankaræningjum og okurlánurum. Samtökin ættu að draga sig í hlé frá mótmælunum á Austurvelli og láta Hagsmunasamtökum heimilanna að standa fyrir þeim. Ekkert mark verður tekið á mótmælunum fyrr en

samtökin Nýtt Ísland hætta þáttöku í þeim. 


mbl.is Nýtt Ísland vill loka sendiráðum og lífeyrissjóðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkið tók heimilið en þjófurinn þvottavélina

Handhafar ríkisvaldsins ræna heimilin en ´´venjulegur´´ snærisþjófur tók þvottavélina. Lögreglan náði snærisþjófinum en má ekki hreyfa við þeim sem ræna heimilin í heilu lagi. Undarlegt.
mbl.is Viðurkenndi þvottavélaþjófnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

20% íbúanna flokksbundnir í Sjálfstæðisflokknum

Með ólíkindum að annar hver fullorðinn Kópavogsbúi er flokksbundinn sjálfstæðismaður. Þetta er hærra hlutfall heldur en það var í Sovétríkjunum sálugu. Kópavogsbúar hafa auðvitað lært af reynslunni að án flokksskírteinis engin borgararéttindi. Þá er skelfilegt til þess að vita ef aðeins þarf að smala um 2000 manns til að taka yfir bæjarsjóðinn.

Auðvitað á að leggja niður sveitarfélögin eins og við þekkjum þau enda uppbygging þeirra ávísun á spillingar og mútur. Þá lærist lýðræðishallinn þar og er svo fluttur yfir á Alþingi.


mbl.is 2000 skráðu sig í flokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Önnum kafinn á loftpressunni ?

Á þessu eru örugglega eðlilegar skýringar. Læt mér detta í hug að hann hafi farið snemma út í morgun með gröfuna eða sé á loftpressunni. Hann er búinn að grafa á vatnsverndarsvæðum Reykvíkinga svo hann er örugglega ekki þar. Læt mér detta í hug að hann sé núna að grafa upp og ætli sér að taka með sér verslunarhverfið í smáranum. Það er hvort eð er allt honum að ´´þakka´´.  Svo er hugsanlegt að embættisgrafan fari til Manna og hann plantar hverfinu aftur án vandræða.
mbl.is Engin viðbrögð frá Gunnari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftur kosinn gunnar

Spillingin varð aftur sigurvegari í Kópavogi en aftur varð gunnar í fyrsta sæti og því munu sjálfstæðismenn fá sinn gunnar til að leiða listann í vor. Þeir hafa aðeins yngt upp hjá sér og hann er nú á langveginn.
mbl.is Ármann sigraði í prófkjörinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnar áfram í fyrsta sæti

Aftur er gunnar í fyrsta sæti hjá sjálfstæðismönnum í Kópavogi. Nú heitir hann að vísu Ármann og þeir hafa yngt hann upp og svo er hann meira á lengdina. Hann er samt gunnar og því er gleðilegt fyrir Kópavogsbúa að valinn skuli maður sem áfram getur tryggt Kópavog í sessi sem fremsta spillingarbæli á Íslandi. Ekki gefa neitt eftir með það Kópavogsbúar.
mbl.is Ármann sígur fram úr Gunnari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ungt fólk les eigi Morgunblaðið

Óskar er greinilega bjartsýnn að ætla að pakka Mogganum inn í Monitor og reyna þannig að fá þá sem eru undir sextugu til að lesa hann. Þegar betur er að gáð er þetta kannski ekki svo vitlaust, Monitor yrði þá meira skólablað þegar leiðarar Moggans eru komnir í rétt samhengi ?
mbl.is Árvakur hf. kaupir Monitor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 1432

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband