Færsluflokkur: Bloggar

Hannabirna forstöðukona á Arnarholti ?

Hannabirna sem aldrei hefur fengið vinnu nema fyrir flokkstengsl kom úr því að vera sendill á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í að verða borgarstjóri. Það er auðvitað þægilegt að vera borgarstjóri með heimilisreksturinn á kostnað borgarsjóðs og vinina á beit í honum líka. Ég vil þó taka fram að sendlar eru alveg jafngóðir til að verða Borgarstjórar og hver annar.

Legg til að sátt verði um það að Besti flokkurinn skipi hana sem forstöðustjóra á Arnarholti þar sem besti flokkurinn hyggst koma upp fanganýsköpunariðnaði að loknum kosningum


mbl.is Vill hvítflibbafangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hægt að kjósa utankjörfundar eins oft og maður vill.

Til að koma til móts við athugasemd Næst besta flokksins er einmitt gert ráð fyrir þeim möguleika að þeir sem greiða atkvæði utankjörfundar geta skipt um skoðun. Eina reglan er sú að síðasta atkvæðið gildir.Það geta allir kosið utankjörfundar 8 vikum fyrir kjördag, svo 5 vikum og þannig koll af kolli. Þeir geta elt skoðanakannanirnar þess vegna. Svo má líka kjósa á morgun á kjörstað þrátt fyrir að maður hafi kosið utankjörfundar í dag. Aðeins síðasta atkvæðið gildir.

Því sýnir þessi athugasemd ókunnugleika  Næst besta á kosningalögunum. Best að koma því á framfæri líka hér við forsvarsmenn Næst besta að það er ekki verið að kjósa Forsetann á morgun.

Að hægt sé að kjósa áður en framboðslistar eru komnir fram er bara aukinn réttur og skaðar engann.


mbl.is Næst bestir vilja ógilda utankjörfundaratkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki lengur vagga spillingarinnar ?

Það er undarlegt ef að Kópavogsbúar ætla ekki að halda í íslandsmetið í spilltu stjórnmálalífi eftir hreppsnefndarkosningarnar á laugardaginn.
mbl.is Meirihlutinn fallinn í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott fordæmi

Steinunn bætir hér ráð sitt duglega og setur þessi afsögn hennar gott fordæmi. Nú bíðum við eftir að Guðlaugur Þór sjái að sér og segi líka af sér. Fleiri en hann hljóta að segja af sér má t.d. nefna Gísla Martein, Júlíus Vífil, Þorbjörgu Helgu og já Baugsprinsessuna sem aldrei varð Hönnubirnu númer eitt.
mbl.is Steinunn Valdís segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Gnarrvíkingur næsti Hreppsstjóri ?

Hanna Birna Baugsprinsessan sem aldrei varð lætur sig enn dreyma um að sendast fyrir flokkinn á launum sem  hreppsstjóri í Reykjavíkurhreppi. Vonandi verður sú martröð kjósenda ekki að veruleika en leyfi mér að giska á að Jón Gnarrvíkungur verði næsti Hreppstjóri.
mbl.is Leiðtogar tjá sig um skoðanakönnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baugsprinsessan sem aldrei varð ?

Dagur er ekki alveg hreinræktuð Hönnubirna og hefur stundum tekið rökum þó hann líði fyrir að hafa verið boðið inn af ISG. Allt að einu er hugmynd hönnubirnunnar um að flokkarnir starfi saman frá þeim tíma er hún hélt í alvöru að D listinn gæti fengið 7 eða 8 menn kjörna í borgarstjórn. Nú virkar þetta bara sem ofmat á eigin vinsældum. Það er ljóst að nú fer hún inn í fundargerðarbækur fortíðarinnar sem Baugsprinsessan sem aldrei varð.
mbl.is Samstarf við Sjálfstæðisflokk langsótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrír kostir í stöðunni

Fyrir  unga íslendinga virðast nú vera   þrír kostir eins og maðurinn sagði: Icelandair, Icelandexpress eða Norræna.

Ríkisstjórnin ætti miklu frekar að setja pening í að styrkja íslendinga til að flytja í burtu. Gera sérsamning við Jótland og Kanada eða jafnvel Mongólíu.


mbl.is Segir sig úr ríkisfjármálahópi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of seint að bjarga þessu með því að draga sig í hlé

Hallgrímur Helgason var að láta sér detta í hug að smáflokkarnir BDFSU gætu bjargað einhverju með því að frambjóðendur í efstu sætum drægju sig í hlé. Ég held að það sé of seint en þetta fólk hefur ekki áttað sig sjálft á undanförnum tveimur árum. Einhver nefndi við mig að allir smáflokkarnir sem voru inni

s.l. kjörtímabil eigi það sameiginlegt að vera algjörlega menningarlausir. Með besta flokknum fáist hinsvegar menningarleg nálgun á verkefnin. Frambjóðendur besta flokksins  séu sigldir og sjái hlutina í hinu stóra samhengi.

Varðandi Þorbjörgu Helgu sem staðið  hefur á beit í borgarsjóði undanfarin ár án þess að hafa nokkuð haft fram að færa  þá held ég að hún komist ekki inn. Jafnvel þó D flokkurinn fengi 3 borgarfulltrúa því hún verður örugglega strikuð niður listann.


mbl.is Stolt af því að vera í baráttusæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt í lagi að svindla

Auðvitað ætti að banna Forstjóra Símans að vinna hjá fyrirtæki sem hefur leyfi til fjarskiptareksturs. Póst og fjarskiptastofnun á að hafa leyfi til að banna svindlurum að koma nálægt rekstri eins og þessum. Það stríðir gegn almannahagsmunum að leyfa manninum að starfa í fjarskiptageiranum. Sekta ætti hann persónulega og fyrirtækið hressilega t.d. um 500 milljónir eða jafnvel að gera fyrirtækið upptækt fyrir brot á lögum. Hér duga engin vettlingatök og sýna þarf brotamönnunum rauða spjaldið.
mbl.is Fengu hrós frá forstjóranum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í flórnum í 50 ár

Alveg rétt mat hjá Stefaníu en vandinn er auðvitað líka fólkið sem kjósendur og fólkið sem gerendur. Styrmi fannst þetta ógeðslegt þjóðfélag í 50 ár en samt stóð hann í flórnum miðjum en gerði samt ekkert nema að gefa út bók um flórinn. Aldrei datt honum í hug að hvetja landsmenn og lesendur eða stjórnmálamenn í leiðurum til að sameinast um kaup á haugsugu.
mbl.is Vopnlausir stjórnmálaflokkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband