Færsluflokkur: Bloggar
20.3.2012 | 13:01
Komnir í eina sæng ?
Annað sem vekur athygli er svo hve fasteignaskattar á atvinnurými eru orðnir fáránlega háir og sú staðreynd þýðir auðvitað að smátt og smátt er öllu atvinnurými breytt í íbúðir inn í íbúðarhverfum en verslunin færist í bragga. Braggar greiða nefnilega lægri fasteignaskatta en vönduð hús því bragginn kostar minna í framleiðslu. Allt þýðir þetta svo aukin kostnað fyrir þjóðfélagið.
Afturkölluðu nauðungaruppboð hjá Vítisenglum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.3.2012 | 12:26
Besta ráðið gegn atvinnuleysi er að vera ekki atvinnulaus.
Birgir Ármannsson: Engin fjölgun starfa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2012 | 20:22
Ég pant ráða.
Þetta mál er í rauninni sígilt spillingarmál á sveitarstjórastiginu. Einhver stingur pening eða greiða í vasann á spillingarnefndinni ( afsakið Skipulagsnefndinni )sem svo breytir skipulaginu fyrir sérhagsmuni. Þolandinn þarf að berjast við sína eigin starfsmenn um réttláta niðurstöðu og kasta til þess 10 árum af lífi sínu. Kerfið hlær hinsvegar bara og fær til þess leyfi frá alþingismönnum sem sí og æ beila sveitarfélögin út úr svona lögleysu með sérlögum. Ekki annað að vænta þegar annar hver þingmaður hefur lengi líka verið sveitarstjóradólgur og því spillingarnándin nærri.
Því miður eru ný lög um mannvirki og ný skipulagslög enn meira sett til höfuðs borgurunum en nokkru sinni fyrr.
Það sem er nýtt í Reykjavík frá þessu máli að nú er spillingin orðin artí með tilkomu Bestu Samfylkingarinnar.
Ákvörðun um deiliskipulag ógilt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2012 | 15:45
Besta valdníðslan.
Skipulagsráð er auðvitað algjörlega vonlaust batterí og ekki heil hugsun í ráðinu. Það stimplar bara en ætti í raun að vinna sem n.k. rannsóknarnefnd. Kanna kosti og galla og hugsa til framtíðar.
Því miður staðfestir þessi samningur að borgararnir eru algjörlega öryggislausir þegar kemur að umhverfi sínu og næstu framtíð ef því er að skipta.
Deiluskipulaginu breytt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.3.2012 | 00:26
Bíladella.
LV seldi bílinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2012 | 22:12
Táknmynd gamla spillta Íslands.
Tilnefningarnar klárar eða ekki? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2012 | 22:06
Sökudólgurinn fundinn.
Fréttastjóri DV í yfirheyrslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2012 | 16:10
Ekki gott handrit.
Það er skrítið að sjá hvernig leikritinu vindur áfram. Skv. þessu liggur fyrir að einhver hefur kíkt á upplýsingar um Guðlaug úr tölvu hjá Landsbankanum og eftir Aðalsteini formanni á hann að hafa farið með gögnin heim til Gunnars í skjóli nætur. Það er þá starfsmaðurinn sem er að brjóta bankaleynd. Í Morgunblaðinu í dag er hinsvegar viðtali við Unni aðstoðar hjá FME þar sem hún upplýsir að allar beiðnir um upplýsingar sem FME óski eftir séu gerðar skriflega og undirritaðar af TVEIMUR starfsmönnum FME.Hafi svo verið um langa hríð.
Í siðustu viku var Gunnar að berjast fyrir starfinu og öllum í bankakerfinu var það ljóst því er sá kafli í handritinu fáránlegur að ætla að Gunnar hafi beðið um gögnin heim. Framhjá öllu prótókolli og þvert á vinnureglur. Þá er jafnfáránlegt að ætla Landsbankanum að vera svo vitlaus að hlaupa með gögnin heim til Gunnars.
Fyrst að starfsmaðurinn er aðeins sendur í leyfi frá störfum þá er hann klárlega ekki Whistleblower. Mín kenning er sú að þetta sé eftiráskýring samin af Aðalsteini og Steinþóri í Landsbanka.
Landsbankinn upplýsti FME | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.3.2012 | 20:45
Plottið.
Plottið reynist þá vera hefðbundið og notuð gamalkunnug leið. Stjórnarmennirnir fá fyrst flokksbróðurinn til að gefa álit ( á kostnað ríkissjóðs ) en álitið er ekki alveg nógu skothelt og heldur ekki skv. starfsmannalögum. Þá er gripið til þess ráðs að fá Landsbankann til að '' upplýsa'' um að Gunnar hafi pantað heim til sín gögn um Guðlaug Þór úr Landsbankanum. Útvarpið segir að þetta snúist um kaup bankans á '' umboði'' af Guðlaugi en hann var áður umsvifamikill auglýsinga og líftryggingasali í Búnaðarbankanum. Það hefði verið of augljóst að segja að gögnin væru t.d. um Helga Hjörvar eða Hrannarbjörn og hefði ekki virkað því stjórn FME eru aðallega klíkuráðnir '' Háskólakennarar '' ( les Samfylkingarmenn ). Stjórnin hefur sjálfsagt talið að hún virkaði '' fagleg'' með sögunni um Guðlaug Þór.
Þessi saga stenst ekki nema sá partur sem snýr að kæru til lögreglu enda geta allir kært alla til lögreglu og lögreglan rukkar ekki enn fyrir móttöku þó að sjúkrahúsin og Útlendingastofnun geri það.
Það þarf engin að halda í ljósi umræðunnar í síðustu viku að starfsmenn Landsbankans hafi hlaupið heim til Gunnars með skjöl um Guðlaug Þór og raunar afar ólíklegt að þeir fari með skjöl sem FME kallar eftir heim til forstjórans. Það ættu allir starfsmenn bankans að vita og getur ekki hafa átt sér stað. Í ljósi þess sem var í gangi í síðustu viku á milli Gunnars og Samfylkingarstjórnar FME þá er ljóst að sagan getur ekki verið sönn. Steinþór bankastjóri getur ekki verið svona vitlaus og Gunnar ekki heldur. Sé sagan sönn þá þarf auðvitað yfirstjórn Landsbankans öll að fjúka.
Þess utan þurfa menn ekkert Landsbankann til að vita um hvað þessi '' viðskipti'' á milli þeirra voru. Kröfuhafar gamla bankans geta séð þau hjá skilanefndinni og svo er veðbókarsaga Guðlaugs ( skuldir ) aðgengilegar hjá Sýslumanni og fyrirtæki hans hjá RSK.
Það er reyndar svo að bankastarfsmenn hafa full mikinn aðgang að upplýsingum um viðskiptamenn bankans sem þeir vinna í, óháð starfa. Þannig gátu ALLIR starfsmenn t.d. skoðað kortanotkun viðskiptavina og stöðu og fjölda innlánsreikninga og skuldir þeirra. Að það skuli leyft er auðvitað óhemju bankafúsk og algjör óþarfi en innlit þeirra í upplýsingar um nágrannann munu þó vera skráðar. Það geta því allir spurst fyrir í bankanum sínum hver hafi verið að skoða gögn um þá innan bankans.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2012 | 11:03
'' Norræn'' velferð.
Miklu betra hefði verið að greiða styrk til Aðalsteins og Ingibjargar beint af fjárlögum undir liðnum '' velferðarstyrkir til 4 FLokks manna en ekki að sitja þau í stjórn FME og láta þau skafa ríkissjóð að innan í gegnum FME.
Réttast er fyrir okkur nú að fá lánað fólk t.d. frá sænska fjármálaeftirlitinu til að sjá um eftirlitið hér. Væri sjálfsagt farsælast og best fyrir þjóðfélagið.
Gunnar kærður til lögreglu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 1272
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar