Félagslega aðstoðin í landinu.

Félagsleg aðstoð á Íslandi einskorðast við banka og sparisjóði og auðvitað Þorstein Þorsteinsson félagsmálastjóra ríkisins. Þessi frétt greinir okkur frá því að ''S ''trákarnir í bankaleiknum á Dalvík fá 725 milljónir í '' félagslega'' aðstoð. Þessi upphæð samsvarar framlaginu til félagsþjónustu í Reykjavík í tæpt ár eða framlagi í atvinnuleysistryggingasjóð í tæpt  ár m.v. 8% atvinnuleysi í öll þau ár. Þetta eru því engar smá upphæðir sem fara í að halda uppi sparisjóðsvelferð á Dalvík. Í þessum strákabanka stunda 10 manns vinnu og 10 sitja í stjórn. Starfsfólk hans er þó að mestu leyti konur en einn strákur fær að leika sparisjóðsstjóra og strákar eru í meirihluta í stjórninni. Slík meðferð á almannasjóðum á auðvitað að vera refsiverð og það sem meira er þá er þessum peningum hent úr ríkissjóði  sk. heimild í lögum um óútfyllta tékka til handa bönkum og sparisjóðum við hrun íslenska fjármálakerfisins.

Þetta ráðslag er til skammar. Það sama gildir auðvitað um aðra strákasparisjóði s.s. Spkef og Mýramannasparisjóðinn.


mbl.is Ekki víst með aðra sparisjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband