Eigendurnir ekki spurðir.

Hér er verið að vísa til  fundar '' eigenda'' fyrirtækisins. Hér er á ferðinni einhver vitleysa því verið er að vísa til fundar sem sveitarstjóradólgarnir sem rændu fyrirtækinu héldu sín á milli. Eigendur fyrirtækisins eru notendur þjónustu þess á samlagssvæðinu. Hinsvegar var því rænt af sveitarstjórnarmönnum sem keyrðu það í þrot ásamt og með umbjóðendum sínum Hjörleifi eða tveimur. Þeir stóðu saman í að skafa fyrirtækið að innan og skuldsetja það svo kaupa mætti verklausar túrbínur af vinum og kunningjum ( örugglega gegn kötti ).Hafa svo greitt sér arð sem notaður hefur verið í útlanda ferðalög sveitarstjórnarmanna. Skilið er eftir fyrirtæki sem er ofurskuldsett og komið í sögubækurnar sem umhverfissóði.

Eigendurnir komast ekki að eign sinni og sitja nú uppi með hæsta orkuverð frá veitu í Evrópu. OR var hinsvegar stofnuð til að  tryggja heimilum í Reykjavík ódýrt heitt vatn og rafmagn.


mbl.is Arðgreiðslur OR felldar niður tímabundið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birnuson

Það eru dálitlar ýkjur að Reykvíkingar búi við „hæsta orkuverð frá veitu í Evrópu“.

Raforkuverð til neytenda í Reykjavík er 10,12kr./kWh. Rafmagn til heimilisnota er meira en helmingi dýrara en þetta í að minnsta kosti 18 löndum í Evrópu: Austurríki, Belgíu, Kýpur, Danmörku, Frakklandi, Þýskalandi, Ungverjalandi, Írlandi, Ítalíu, Lúxemborg, Möltu, Hollandi, Póllandi, Portúgal, Rúmeníu, Slóvakíu, Svíþjóð og Bretlandi.

Heitavatnsverð til neytenda í Reykjavík er <1,50kr./kWh (eftir hita vatnsins við inntak í hús). Ódýrasta orka til húsahitunar (jarðgas) er meira en helmingi dýrari en þetta í að minnsta kosti 22 löndum í Evrópu: Austurríki, Belgíu, Búlgaríu, Tékklandi, Danmörku, Frakklandi, Þýskalandi, Ungverjalandi, Írlandi, Ítalíu, Lúxemborg, Ítalíu, Lúxemborg, Hollandi, Póllandi, Portúgal, Rúmeníu, Slóvakíu, Slóveníu, Spáni, Svíþjóð og Bretlandi.

Sjálfur er ég nýfluttur til Íslands frá Belgíu, þar sem ég bjó í meðalstóru raðhúsi og borgaði um &#128;50 á mánuði fyrir rafmagn, þ.e. um 7.500 kr., og um &#128;200 á mánuði fyrir heitt vatn (hitað með gasi), þ.e. um 30.000 kr. Hvað þætti Reykvíkingum um slíka orkureikninga?

Með kveðju, Sigurjón

Birnuson, 22.9.2010 kl. 00:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 985

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband