9.9.2009 | 12:00
Regla, því miður
Þá kemur mér nafn hans í hug er ég heyri lausrar stöðu getið. Sumir segja að eitt aðal stefnumál Samfylkingarinnar sé að útvega Einari Karli Haraldssyni vinnu á kostnað þrautpíndra skattgreiðenda.
Einar Karl var áður einn aðal spunameistari gamla Kaupthiefs. Einn af hrunfólkinu svokallaða. Auðvitað er samfylkingin aðallega bandalag um að komast að kjötkötlum hjá Ríkisvaldinu.
Ef hægt er að sekta bíleigendur fyrir að færa ekki bíl til skoðunar innan tímamarka þá á líka að vera hægt að sekta Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir að brjóta auglýsingaskyldu hins opinbera. Aðeins þannig komast þessi mál í lag. Þetta er auðvitað spillingarráðning og gerir Einari Karli ekki gott til. Því vel getur verið að hann hefði fengið starfið eftir auglýsingu.
Áréttar auglýsingaskyldu stjórnvalda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.