7.9.2009 | 15:15
Örugglega ofmönnuð svið
Furðulegt að nákominn ættingi Hönnu Birnu eða Óskars skuli ekki vera settur í starfið nú þegar skammt er í að Hanna Birna og Óskar fari í kosningabaráttu og sýnt að þau bráðvantar pening. Verktökum hefur fækkað og því ekki jafn auðveld að fá þá til að kaupa atkvæði í Borgarstjórn og Skipulagsráði. Eykt er í vanda og Landic og Baugur líka og engir arftakar sjáanlegir enn. Kannski Óskaberg verði til ??
Að Ellý sé tveggja manna maki er örugglega ekki rétt, miklu sennilegra er að minna verði um loftbóluverkefni en sem kunnugt er þá gefur Reykjavíkurborg sig út fyrir að vera í bullrekstri út og suður. Í raun er rekstur Borgarinnar komin út yfir öll mörk. Þar sem sést skatttekjuhola þar er Reykjavíkurborg mætt og tæplega 70 starfsmenn eru með stjóratitil og milljón plús í laun. Verkefni þjóðfélagsins hljóta að beinast að því að skera niður starfssemi sveitarfélaganna. Í Reykjavik er örugglega hægt að skera niður um 40 milljarða án þess að nokkur verði þess var og það myndi þýða mikla aukningu á ráðstöfunarfé Reykvíkinga en við það gæti útsvarið lækkað niður í 3 til 4 % og fasteignaskattar yrðu liðin tíð. Allt myndi þetta bæta mannlífið og afkomuna í borginni. Áfram Ellý taktu endilega að þér fleiri sviðsstjórastöður hjá Reykjavíkurborg.
Stýrir tveimur sviðum í vetur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.