6.9.2009 | 17:30
Landsdómur verði kallaður saman hratt
Nafnlausir níðingar hafa alltaf verið til en í netheimum eru þeir þó skráðir. Almenningur hafði fyllstu ástæðu til að ætla að þröngir sérhagsmunir ráðherrans réðu ferðinni mánuðina fyrir hrun og í Ingibjargar og Geirshruninu miðju. Björgvin ferðaðist um og boðaði erindi bankanna gegn betri vitund. Blekkti almenning og gætti í engu hagsmuna allra íslendinga. Þá er ekki rétt hjá honum að hann hafi upplýst um sín mál. Yfirlýsing viðskiptabanka var ekki fullnægjandi enda var hún óstaðfest og óendurskoðuð.
Allt í lagi að draga fólk til ábyrgðar fyrir róg á netinu en um leið er líka sjálfsagt að draga þá til ábyrgðar fólk eins og Björgvin G Sigurðsson sem blekkti og laug að almenningi auk þess að ganga harðast fram allra í að ábyrgjast svindlið. Hefur svo gerst þjófsnautur sem einn af handhöfum ríkisvaldsins undanfarna mánuði. Hann brást almenningi algjörlega á vaktinni og er einn af þeim sem ber höfuðábyrgð á því að hafa ´´ eitrað líf ´´ fjölmargra íslendinga á undanförnum mánuðum.
Vonandi styður Björgvin hratt og vel að Landsdómur verði kallaður saman svo ákæra megi hann fyrir brot í Ráðherrastarfi. Jafnhratt og hann vill nú breyta meiðyrðalöggjöfinni.
Björgvin G.: Ný vídd í nafnlausu níði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.