18.6.2009 | 21:58
Í skjóli nætur
´´Bankastjórnin´´ ríkisstjórn VG banka og Jóhönnu er ávallt fljót til þegar redda þarf bönkunum. Hún er líka fljót til að berja á borgurunum. Ísland er nú smátt og smátt að verða að Norður Kóreu norðursins fyrir tilstilli þeirra STEJS og Jóku. Það er gert til að vera áfram með í alþjóðasamfélaginu. Lífskjör hér eru reyndar orðin verri en víðast hvar í norður Afríku en íbúarnir eru einangraðir eins og íbúar Norður Kóreu. Það eina sem þeir gátu leyft sér á góðum degi var að kaupa frón súkkulaðikex og kóka kóla. Nú er sá tími líka liðinn og það lá svo mikið á að mynda þessa skjaldborg um heimilin að
ekki dugði minna en að starfa í skjóli nætur. Þeir sem vildu kaupa sér sólarblíðu og c vítamín í appelsínusafa, þeir munu líka sitja óbættir hjá garði. Þetta verður auðvitað ekki vandamál fyrir Steingrím og
Jóhönnu en þau eru auðvitað bæði á fríum kosti og að auki með milljón á mánuði í kaup. Ráðstafanir þessar þýða auðvitað líka að atvinnuleysi eykst hér umtalsvert og fleiri fyrirtæki loka. Allt á þetta líka
eftir að ýta undir landflótta því landið stenst einfaldlega ekki samkeppni við nokkurt land í Evrópu og er komið svo langt aftur úr öðrum löndum að við komumst örugglega í heimsmetabókina. Nú spái ég því að næsti leikur þeirra verði stofnun fjárhagsráðs. Hvað gerir maður ekki til að vera á sama báti og þau bankastjórahjón.
Skattur á kex og gos í 24,5% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.