20.5.2009 | 21:27
200 ár þangað til við komumst á þetta plan ??
Í Bandaríkjunum er löggjafarþing og starf þingmanna felst í að grunda og setja lög.Lögunum framfylgir Forseti ásamt ráðherrum sínum. Hið íslenska Alþingi og starfshættir þess eiga lítið skylt við
löggjafarstarf.Alþingi og íslendingar þurfa sennilega að bíða í 200 ár enn þangað til fréttin um frönsku stjórnarbyltinguna berst þingmönnum og alltof mörgum kjósendum. Hvað er löggjafarstarfið hér ?? er það yfirstimplarastarf hjá ráðherra eða er starfið að tryggja frjálst flæði fjármagns til fjölskyldunnar og
sjálfs síns eða til verkefna sem tryggja vinum og kunningjum peninga frá skattborgurunum.Sennilega
blanda af hvoru tveggja.Að starf Alþingis sé löggjafarstarf virðist hér vera á vitneskju innan við 10 manna sem fá launaávísun frá þinginu. Ef við náum ekki að komast undan Alþingi og hefðum þess þá
munu áræðanlega líða 200 ár þangað til þingmenn hér komast á sama plan og bandarískir öldungadeildarþingmenn. Þangað til: lifi Sundabrautin, lifi Héðinsfjarðargöngin, lifi Tónlistarhúsið.
Hafnar lokun Guantanamo | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.