24.4.2009 | 20:05
Ormagryfja
Skiptir þú við Samskip ?? ekki ég. Ferill Ólafs hófst með þjóðargjöfinni ( Samskip) til hans frá Landsbankanum og
svo keypti hann banka og greiddi fyrir pening sem dugði ekki fyrir útborgun í kjallaraíbúð. Með öðrum orðum þá var erfiðara að kaupa kjallaraíbúð í Reykjavík en að kaupa Kaupthing á þeim kjörum sem Ólafi og hans nostra bauðst. Nú er úti ævintýri en er hissa á að hann skuli ekki nýta sér greiðslujöfnunarleið VG og S en skv. henni er boðið upp á niðurfellingu skulda. Er gert ráð fyrir að ráðgjafastofa heimilanna hjálpi fólki að fara greiðslujöfnunarleiðina. Af hverju fer Egla ekki þá leið frekar en að óska nauðasamninga. Ég er viss um að annað gildir um Eglu Ólafs Ólafssonar en önnur fyrirtæki.Ráðgjafastofa heimilanna er örugglega opin Eglu.
Sting að lokum upp á því að Egla skipti um nafn en þetta fyrirtæki kemur óorði á Eglu , söguna um Egil Skallagrímsson. Sonur Gríms Kveldúlfssonar rak sem kunnugt er stóra fyrirtækjakeðju í Evrópu á sínum tíma.Hann rak m.a. öryggisgæslufyrirtæki á Englandi en sinnaðist við einn kúnna Aðalstein Englakonung. Egill var óvenjulegur maður sem leysti málin með óvenjulegum hætti en til að bjarga sér frá viðskiptum við Aðalstein og koma sléttur frá þeim datt hann niður á óvenjulega lausn.Hvernig reddaði hann sér ? með nauðasamningum ? Nei hann orti Höfuðlausn.
Egla óskar eftir nauðasamningum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.