24.4.2009 | 13:33
Sami hrokinn gagnvart breskum yfirvöldum og borgararar mæta hér
Ekkert er gert opinbert en ég ætla að geta mér þess til að sami hroki og einkennir samskipti íslenskra
stjórnvalda við íslenska borgara hafi gert illt verra. Íslensk yfirvöld lásu aldrei EES samninginn og íslensk yfirvöld höfðu aldrei samband við neinn á Bretlandseyjum hvorki í september né október.Semsagt alger skortur á mannasiðum og sjálfsagt héldu stjórnvöld að þau kæmust upp með það sama og mætt hefur íslenskum borgurum.Þegjum þangað til þeir gleyma þessu.Öfugt við íslensk
stjórnvöld þá voru bresk yfirvöld að hugsa um sína þegna og þess vegna voru hryðjuverkalögin sett á
Landsbankann.Á meðan mokaði íslenska stjórnkerfið peningum inn í bankana sem fóru svo strax aftur út og til Tortólu. Hér opinberaðist nefnilega líka siðferðisrof og spilling og hér var aldrei neitt kerfi nema kunningjakerfi þingheims og bankaheims.Því er fráleitt að tala um kerfishrun því hér var á ferðinni kerfissvindl.
Siv segir atburði ævintýralega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.