Verður Samherji sjálfur ráðherra ?

Bankarnir og tryggingarfélögin hafa átt tryggan vin í Árna Páli svo sennilegast er búið að tryggja velferð banka og tryggingarfélaga til næstu framtíðar. Má svo sem segja að óþarfi sé að halda úti ráðherrastarfi í kringum þetta því frumvörpin hafa hvort eð er verið samin í bönkunum eða á skrifstofu tryggingarfélaganna.

Sama má auðvitað segja um Jón Bjarnason en hann hefur að vísu aðeins verið að rembast við og smábátar hafa fengið örlítinn kvóta en nú er sennilegast að ráðherra Samherja í ríkisstjórninni verði starfsmaður fyrirtækisins á Alþingi Hr. Björn Valur Gíslason.  Steingrímur sjálfur er sennilega á útleið og fer sennilega að vinna í útlöndum fyrir AGS en það eru mörg þjóðfélög sem á eftir að eyðileggja og þessi markaðsmaður AGS númer 1 getur örugglega orðið ráðgjafi á þeirra vegum. Engum hefur áður tekist að selja stefnu AGS sem vinstri stefnu. Þá hefur hann þegar tryggt sérhagsmuni sína tryggilega á síðustu þremur árum.


mbl.is „Ekki sami maður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 891

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband