13.6.2011 | 20:09
Dýrir milliliðir sveitarstjóradólgarnir
Sveitarstjóradólgarnir komust yfir grunnskólana og reka þá núna. Við það að flytja þá frá ríkinu yfir til '' sveitarfélaganna'' les, sveitarstjóradólganna varð til dýr milliliður á ferð peninganna frá ríkinu til nemendanna. Áður fóru peningarnir beint frá ríkinu til skólanna en nú fara þeir frá ríkinu í ráðhúsin-þar sem góður hluti hverfur- og þaðan í skólana.
Enginn vildi þessa breytingu nema sveitarstjóradólgurinn og ástæða þess að Alþingi samþykkti lög um ''flutninginn'' var sú staðreynd að helmingur þingmanna
voru núverandi eða fyrrverandi sveitarstjóradólgur í leit að tilveru grundvelli.
Afleiðingin hefur verið sú að skólarnir fá nú aðallega minni pening til rekstrar en áður og skorið er niður við nemendur í þjónustu. Þrifin eru minni, skólastarfið er líka fábreytnara.
Samkvæmt þessari frétt þurfa nú ráðhúsin meiri pening og samtök ráðhússstarfsmanna ( samtök sveitarfélaga ) þurfa meiri pening. Um áramótin síðustu voru '' málefni fatlaðra'' flutt yfir til sveitarstjóradólganna og það sama verður upp á teningnum fyrir fatlaða.
Sveitarfélögin eru löngu liðinn tími og tilheyra hverfandi fortíð enda algjörlega óþarfur milliliður á 21. stu öldinni. Ísland er smáríki og hefur ekki efni á svona vitleysu því svo virkar fátt sem sveitarstjóradólgarnir koma nærri.
Stefnir í töluverðan niðurskurð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 1136
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.