31.8.2010 | 15:35
Stöðvarfjörður í Smáralindina ?
Nú er ráð að flytja Stöðvarfjörð í Smáralindina en gera kröfu um að börnin sæki skóla í Skuldanesbæ. Við það myndi hagur Smáralindar og Skuldanesbæjar aðeins batna. Við þennan flutning gæti orðið til landsbyggðarsafn í Smáralindinni. Það væri alveg eftir íslenskri Hagfræði að gera þetta.
Pósthúsi og banka lokað á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það ku vera lítið um fjallagrös í Smáralindinni. Þvi verður augljóslega ekki um neina atvinnuuppbyggingu "a la vinstri grænna" að ræða samfara flutningunum.
Kefli (IP-tala skráð) 31.8.2010 kl. 15:44
Og ég sem hélt að stórvirkjanir & bræðslur "a la hægri vænna" væru búnar að tryggja þar austur um endalausa þjónustuþörf og atvinnu-uppbyggingu. Bara skilettekki....
Jón Logi (IP-tala skráð) 31.8.2010 kl. 16:16
Auðlindin er fyrir austan en hagræðingar "ríkisins" fyrir sunnan, hjá Landsbankanum hafa þeir reiknað það út að skera þurfi niður. Því datt þeim helst í hugað gera það á Stöðvarfirði því þar er ein afgreiðsla, þ.e. Landsbankans. Því engin hætta á ríkisrekinni samkeppni. Lifi Húsasmiðjan á kostnað ríkisins og lífeyrissjóðanna okkar þar má ekki láta loka neinni búllu heldur skal borgað með þangað til næst þarf að byggja.
Pósturinn ætlar að selja sælgæti og ritföng í nafni ríkisins en hefur engan áhuga á að dreifa pósti með þjónustu þar sem hann hefur hvort því er einokun . Heldur auglýsir hann í gríð og erg að hann taki að sér að pakka til og frá LA.
Magnús Sigurðsson, 31.8.2010 kl. 16:32
Stöðfirðingar voru engir bónbjargarmenn meðan þeir fengu að ráða sínum málum sjálfir. Þeir hefðu ekki orðið meðaltals tekjuhæðsta byggðarlag landsinsí mörg ár ef þeir hefðu bara tínt fjallagrös.
Magnús Þorvaldsson (IP-tala skráð) 31.8.2010 kl. 17:27
Magnús... það verður póstþjónusta á Stöðvarfirði heim að dyrum alla virka daga ársins.. hvernig er hægt að skrifa svona rangfærslur og bull..nema þekkja málið ekki neitt.
Jón Ingi Cæsarsson, 31.8.2010 kl. 18:23
Ég var að svara athugasemd nr.1 hér að ofan, þar sem mátti skilja að Stöðfirðingum nægði alveg. að tína bara fjallagrös.
Magnús Þorvaldsson (IP-tala skráð) 31.8.2010 kl. 19:03
Magnús Sigurðsson átti þetta skot
Jón Ingi Cæsarsson, 31.8.2010 kl. 21:52
Nei er jafnaðarmaðurinn Jón Ingi með skot hér. Ég fer í berjamó á Stöðvafjörð Jón og veit hvar bestu berjaþúfurnar eru, eins og nafni minn Þorvaldsson bendir á voru Stöðfirðingar voru engir bónbjargarmenn meðan þeir fengu að ráða sínum málum sjálfir.
En Jón það er ekki nóg að fá Póstinn heim að dyrum alla virka daga ársins, það þarf líka að vera hægt að koma honum frá sér. Það er ekki nema von að sá þáttur standi í stuðningsmönnum Gjaldborgarinnar, þar sem litið er svo á að hver borgari sé aðeins féþúfa sem þarf að vera hægt að koma greiðsluseðlunum til.
Magnús Sigurðsson, 31.8.2010 kl. 23:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.