6.3.2010 | 23:16
Búin að vera bæði tvö
Steingrímur og Jóhanna eru auðvitað búin að vera bæði tvö. Kannski eru þau meiri akkilesarhæll á uppbygginguna og uppgjörið en þau gera sér sjálf grein fyrir. Bæði alin upp í leyndarhyggju óhreininda
stjórnmálanna. Voru bæði kosin á þing á tímum þegar stjórnmálamaðurinn sagði nei þegar hann meinti já. Bæði allt of kassalaga til að átta sig í samtímanum og voru í raun valin af því þau voru minna spillt en aðrir á dekkinu.
Jóhanna: Kom ekki á óvart | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þór Saari segir réttilega á sínu bloggi: "Vonandi hafa þingmenn meirihlutans þroska til að endurmeta stöðuna nú, en það verða að vera þeir, því forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar munu ekki geta það." Ótrúlegt að hlusta á Lady GaGa & SteinFREÐ enn og aftur "bulla & rugla" - SteinFREÐUR sagði að IceSLAVE yrði að klára á næstu vikum - RANGT - frekar augljóst að þessu máli verður ekki lent á farsælan hátt fyrir en þau (TRÚÐARNIR) stíga niður - ef þau segja bæði af sér, þá geta þau bjargað lífi þessara AUMU & stórhættulegu ríkisstjórnar, en því miður hafa þau ekki VIT á slíku. Réttast væri nú að Lady GaGa myndi skila inn stjórnarumboði sínu enda valda þau skötuhjúin ekki verkefninu.
Þau hafa ítrekað sýnt skelfilega slæma verkstjórn og ÞAU ráku burt eina ráðherrann sem reyndi að tala VIT inn í þeirra frosinn heila. Þau vilja ekki hlusta á þjóðina eða Heilbrigða skynsemi, þá fer ekki vel. Nú er mál að linni, þau valda ekki sínum störfum, frekar augljóst. Ekki hljálpar heldur að Samspillingin er ekki "stjórntækur FLokkur" - það verður nóg að gera hjá Spunameisturum þeirra & Baugsmiðla að útskýra HÖFNUN þjóðarinnar á þeirra verkstjórn. Í mínum huga eru þau skötuhjú stórhættuleg, nóg að hlusta á þau í sjónvarpinu hjá RÚV kl. 22:00 í kvöld, þar upplýstu þau enn & aftur að þau ætla að reyna að lenda IceSLAVE málinu á nótum UK & Hollands, svo þeirra stórhættulega ríkisstjórn geti haldið áfram.
Ég treysti því að ÞÚ, Birgitta, Framsókn, Ránfuglinn & flestir þingmenn VG standi gegn þeim skötuhjúum og verjið málstað okkar í þessari mikilvægustu utanríkisdeilu landsins EVER...! Þorskastríðið var gríðarlega mikilvægt, en það sama má segja um Icesave. Löngu tímabært að Lady GaGa HÆTTI að SUNDRA þjóðinni og fari að HLUSTA á þjóðina. Hún á að vinna fyrir okkur, ekki EB - maður á ekki orð yfir HROKA & heimsku hennar. Ítreka að lokum þá sorglegu staðreynd að þau verða að hætta sem ráðherrar, verkstjórn þeirra er skelfileg!
kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)
Jakob Þór Haraldsson, 6.3.2010 kl. 23:44
Uppnefni eru þreytandi og til þess fallin að beina athyglinni frá inntakinu.
Eru Jóhanna og Steingrímur ekki enn þau minnst spilltu? Og þar með skásti kosturinn, þrátt fyrir allt?
Tinna Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 7.3.2010 kl. 09:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.