23.1.2010 | 14:28
Útlendan sáttamann fyrir almenning í landinu.
Það er nauðsynlegt að almenningur leiti líka að útlendum sáttamanni til að hafa milligöngu í landinu á
milli almennings og banka og kvótavaldsins sem nú fer með landsstjórnina. Ríkisstjórnin er því miður algjörlega sambandslaus við fólkið í landinu.
Útlendir sáttamenn hafa t.d. reynt að koma á talsambandi á milli Mugabes og þjóðarinnar í Zimbabwe. Það hefur að einhverju leyti tekist þar og ætti að geta gefið góða raun hér að fá t.d. Sameinuðu þjóðirnar til að gæta að hagsmunum borgaranna gagnvart ríkisvaldinu. Þá mætti hugsa sér að fá t.d. menn eins og Jimmy Carter til að tala máli þjóðarinnar gagnvart stjórnmálastéttinni og spillingunni þar.
Það gæti bjargað miklu en tækifærunum fækkar til þess eftir því sem fleiri og fleiri heimili sæta eignaupptöku og nær öll fyrirtæki hafa verið tekin af eigendum sínum í gegnum Ræningjadeild Stjórnarráðsins og Gylfa Magnússonar.
Erlent ríki kannar sáttagrundvöll | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.