12.1.2010 | 18:14
Stjórnendur Vestia styðja sig og vini sína.
Starfsmenn Landsbankans sem göbbuðu fyrirtæki í veðmál og veðjuðu svo gegn kúnnanum héldu sem
kunnugt er vinnu sinni þrátt fyrir að keyra þjóðfélagið og bankann á hausinn .Þeir eru nú smátt og smátt að koma dánarbúum fyrirtækja í hendur sínar og vina sinna. Í tilfelli fyrirtækjanna sem Vestia hefur tekið yfir þá er iðulega um að ræða ágæt fyrirtæki og þokkalega rekin en voru sett í pant af fyrri eigendum. Oft í veðmálum við stjórnendur Vestíu-þegar þeir voru í ábyrgðarlausi fokki í bankanum-, . Nú taka starfsmennirnir fyrirtækin yfir og byrja á að reka yfirstjórnina og setja vini sína inn í staðinn. Næsti leikur í stöðunni er svo að eignast fyrirtækin sjálfir eftir að pantskuldirnar hafa verið afskrifaðar.
Sanniði til, við eigum eftir að sjá tilkynningar um að hin nýju stjórnendateymi hafi ´´ ákveðið´´ að kaupa fyrirtækin af Vestíu og eftir áræðanleikakönnun og ´´ mat´´ á stjórnendum hafi Vestía ákveðið að ganga að ´´ tilboði´´ þeirra. Svindl er því miður það eina sem þessir menn kunna. Allt á þetta eftir að stækka skuld gamla fallna Landsbankans við innlánseigendur.
Forstjóraskipti í Húsasmiðju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Guðjónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
....og þangað til verður boðið upp á tax free daga í boði skattgreiðenda.
Bankster. (IP-tala skráð) 12.1.2010 kl. 20:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.